1001 Þjóðleið
Út er komið ritið 1001 Þjóðleið eftir Jónas Kristjánsson.
Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri hefur áratugum saman skrásett þjóðleiðir á Íslandi og afraksturinn birtist í þessari einstöku bók. Yfir 1.000 göngu- og reiðleiðum er lýst og þær sýndar á vönduðum kortum. Þessari eigulegu bók fylgir stafrænn diskur sem gerir kleift að hlaða leiðunum inn í GPS-tæki.
Jónas fylgdi útgáfu bókarinnar úr hlaði með því að koma ríðandi Fríkirkjuveg að Iðnó þar sem hann afhenti Haraldi Þórarinssyni formanni Landssambands hestamannafélaga og Ólafi Erni Haraldssyni formanni Ferðafélags Íslands sitthvort eintakið af bókinni.
Fréttir af því má nálgast hér á vefsíðu RÚV og hér á Stöð 2.
Hægt er að festa kaup á ritinu hér hjá Sögur-útgáfu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH