Gæðingurinn Glóðar frá Reykjavík fallinn
Gæðingurinn Glóðar frá Reykjavík er falinn, 25. vetra, en hann var felldur í lok nóvember.
Glóðar var undan Roða frá Múla og Glóð frá Möðruvöllum. Hann var glæsilegur rýmis klárhestur með afburða góðu tölti. Hann vann til fjölda verðlauna á keppnisbrautinni en árið 2004 varð hann Reykjavíkurmeistari í tölti og í a úrslitum í tölti á Landsmóti og árið 2006 var hann í A úrslitum í b flokki á Landsmóti. Hans besti árangur var 98 punktar í tölti og einkunnin 8,91 í b flokki.
Samkvæmt ræktanda Glóðars skilaði hann hálsfallegum afkvæmum með gott geðslag, miklum fótaburði og taktgóðu tölti en Glóðar var úr ræktun Guðjóns Sigurðssonar í Hjallanesi. Glóðar átti 321 eitt afkvæmi en hæst dæmda afkvæmi hans er Penni frá Eystra-Fróðholti með 8,23 í aðaleinkunn. Penni var í úrslitum í A flokk í sumar á Landsmótinu og vakti athygli fyrir glæsilega skeiðspretti.

Síðasta myndin af Glóðari tekin síðast liðinn október. Á myndinni með honum er ræktandi hans og eigandi Guðjón Sigurðsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH