Heim að Hólum á aðventu

  • 6. desember 2022
  • Tilkynning
Opinn dagur hjá Háskólanum á Hólum

Það er nóg um að vera hjá Háskólanum á Hólum á aðventunni. Næsta laugardag, 10 desember, verður opinn dagur hjá skólanum og m.a. verður sögusetrið opið, jólatréssala og verða hestafræðinemar með jólasýningu í Þráarhöllinni.

Hér fyrir neðan er dagskrá dagsins:

  • Háskólinn á Hólum, opið hús fyrir gesti í aðalbyggingu kl. 12-15.
  • Jólatréssala á vegum Skógræktarfélagsins á Hólum, frá kl. 12-14. Staðsett framan við aðalbyggingu.
  • Söguganga um Hólastað, kl. 13-14. Mæting við Nýjabæ, Sigríður Sigurðardóttir lektor í ferðamáladeild verður með leiðsögn um staðinn.
  • Sögusetur Íslenska hestsins verður opið frá 12-14.
  • Kynning á Ferðamáladeild í aðalbyggingu frá 12-14.
  • Fiskeldis- og fiskalíffræðideild verður með útirannsóknastofu frá 12-14.
  • Kaffi Hólar verður með veitingasölu frá kl. 12-15.
  • Hesthúsið á Brúnastöðum, opið í norðausturhluta hússins frá 14–14.30.
  • Jólasýning hestafræðinema í Þráarhöll kl. 14.30 – 15.15.
  • Bíll smáframleiðenda verður með opið kl. 12-15
  • Ísponica verður með opið frá 12-14.
  • Bjórsetrið verður opið frá 12-17. Boðið verður upp á jólaglögg.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link