Flugstart á vetrarþjálfunina-sýnikennsla
Hvað er það sem gerir að verkum að það gengur rosalega vel hjá mér í þjálfun á hestinum mínum, og svo er eins og ekkert virki þegar ég mæti í keppni?
Hvernig lærir hestur? Hvað er það sem gerir að verkum að hesturinn geti tileinkað sér ákveðið viðbragð við vissri ábendingu?
Hvað er alltaf verið að meina með léttleika í ábendingum?
Hvernig skipulegg ég þjálfunina? Og hvað er mikilvægast núna?
Það er að mörgu að hyggja í þjálfun og tamningu reið- og keppnishesta.
Hinrik Sigurðsson reiðkennari og yfirþjálfari hjá Hestamannafélaginu Sörla í Hafnarfirði verður með sýnikennslu á Sörlastöðum í Hafnarfirði á fimmtudaginn 15. Desember klukkan 19:30 í samstarfi við fræðslunefnd Sörla.
Við slógum á þráðinn til Hinna og spurðum hann um viðburðinn.
„Ég er búinn að vinna mikið með að halda fyrirlestra um reiðmennsku og þjálfun á Zoom síðustu tvö árin, og verið með nemendur allsstaðar að á þessum fyrirlestrum.
Þetta eru í raun bara bóklegir tímar um ýmis efni sem ég hef tekið fyrir, og nú fannst mér kominn tími á að færa mig yfir í að láta vaða í létta sýnikennslu byggða á hluta þeirra.
Sýnikennslan sem ég kalla „Flugstart á vetrarþjálfunina“ er byggð á fyrirlestrum sem ég kalla Grunnreiðmennska og þjálfun I og II, og ég ætla að hafa með mér nokkur hross, og jafnvel einn til tvo aðstoðarknapa og fara yfir mikilvægustu hornsteinana í tamningu og þjálfun reiðhestsins.
Ég er alltaf voðalega upptekinn af knapaþjálfun, bæði hugarfar knapans sem hefur svo ofboðslega víðtæk áhrif á reiðmennskuna, og svo færni knapans til þess að gefa hestinum nákvæmar og réttar ábendingar.
Svo ég ætla að tvinna því saman yfir kvöldið, að ræða mikilvægi þess að knapinn hafi stjórn á hugarfari sínu, stemningu og líkamstjáningu, og geti þar með náð góðu sambandi og samskiptum við hestinn í leik og starfi.“
Hvaða áherslur og gildi eru það sem þú vinnur helst eftir við þjálfun og kennslu?
„Ég hef á mínum ferli kannski fyrst og fremst einbeitt mér að því að vera reiðkennari, og hef í gegnum tíðina lagt nótt við dag í alls kyns pælingum um það hvernig best sé að koma hlutunum skýrt frá sér, hvernig verða samskiptin skýr og góð, bæði við hestinn að sjálfsögðu og svo við nemendur.
Það sem ég vill alltaf leggja áherslu á í allri þjálfun og tamningu er að tryggja það að hesturinn skilji það sem ég er að reyna að koma á framfæri. Það er alltaf á mína ábyrgð sem þjálfari að tryggja það að hesturinn skilji aðstæðurnar sem hann er í, ábendingarnar sem notaðar eru og æfinguna, og þannig er hægt að komast áleiðis í þjálfun.
Hesturinn er frábær skepna, honum er alveg skítsama hvað sé rétt eða rangt að gera, hann er ekki með þá rökhugsun sem við mannfólkið höfum (oftast), heldur bregst einfaldlega alltaf fullkomlega við öllu áreiti samkvæmt sínu náttúrulega eðli, sem er að leitast í öryggi og þægindi.
Hesturinn kann ekki að ljúga, en er algjörlega samkvæmur eðli sínu, og knapi sem er meðvitaður og áhugasamur um eðli hestsins og atferli á oftast mjög auðvelt með að þjálfa hestinn og temja. Bara það að við sem knapar tryggjum að það sem okkur finnst vera rétt, verði öruggt og þægilegt fyrir hestinn, og þá vill hann gjarnan. Þetta finnst mér mjög skemmtileg leið að tamningu og þjálfun, þ.e.a.s að hesturinn upplifir öryggi og þægindi, mér fannst hann gera rétt og báðir verða þrælglaðir saman. Snýst allt um skilning, traust á ábendingum og virðingu. „
Eins og áður segir verður sýnikennslan á Sörlastöðum í Hafnarfirði, en henni er einnig streymt svo það er hægt að fylgjast með hvar sem maður er staðsettur á landinu?
„Já, ég er búinn að vera í því að kenna mikið gegnum Zoom og fleiri lausnir, og nú langar mig að prófa það að streyma bara heilli sýnikennslu líka, og geta þar með boðið uppá aðgengi að þessu þó maður sé ekki staðsettur endilega í Hafnarfirði eða nágrenni.
Það hefur gefið mér mikið að geta haldið sambandi við nemendur víða um land og raunar um allan heim gegnum ýmsar lausnir á netinu, og ég vill mjög gjarnan taka það bara áfram. Endilega hendið inn skráningu hjá [email protected] eða á Facebookinu og við sjáumst á fimmtudag.“ segir Hinni og er rokinn í hnakkinn aftur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH