Maður ársins 2022

  • 14. desember 2022
  • Fréttir
Lesendum Eiðfaxa gefst nú færi á að útnefna manneskju ársins 2022 úr röðum hestamanna

Lesendum Eiðfaxa gefst nú færi á að útnefna manneskju ársins 2022 úr röðum hestafólks og allra þeirra sem hafa einhverja tengingu við hestamennsku. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er öllum frjálst að senda inn tilnefningar.

Eiðfaxa hefur nú þegar borist hátt í 100 tilnefningar en tekið er við tilnefningum með því að smella á þennan link HÉR. Frestur til að tilnefna rennur út þriðjudaginn 20. desember. Í tilnefningunni þarf nafn viðkomandi að koma fram auk upplýsinga um hvers vegna viðkomandi á skilið að vera útnefndur sem maður ársins 2022.

Farið verður yfir tilnefningar með tilliti til rökstuðnings og fjölda tilnefninga sem hver og einn fær. Á milli þeirra fimm sem fá flestar tilnefningarnar fer svo fram atkvæðagreiðsla á vef Eiðfaxa yfir jólin. Manneskjan sem verður fyrir valinu verður heiðruð í lok árs.

Þetta er í fyrsta skipti sem Eiðfaxi stendur fyrir vali á manni ársins úr röðum hestamanna og verður spennandi að sjá hver hlýtur þann heiður. Við á Eiðfaxa vonumst eftir góðri þátttöku.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link