Gæðingamót Fáks og úrtaka fyrir Landsmót
Gæðingamót Fáks og úrtaka fyrir Landsmót fer fram á félagssvæði Fáks í Víðidal dagana 26. – 29. maí næstkomandi.
„Auk úrtöku fer fram Tölt T1 World Ranking mót en þar er aldurstakmark 18 ára á árinu og eldri. Gert er ráð fyrir að töltið fari fram laugardaginn 28. maí. Aðeins einn flokkur í boði þar sem einn knapi er inn á í einu. Vegleg peningaverðlaun verða í töltinu, fyrir 1. sætið kr. 100.000,- fyrir 2. sætið kr. 30.000,- og fyrir 3. sætið kr. 15.000,-. Vegleg verðlaun verða í öllum öðrum greinum. Að auki verður hin glæsilega „Gregersen-stytta“ veitt þeim Fákskeppanda sem sýnir prúðmennsku og snyrtimennsku í hvítvetna og er ávallt klæddur Fáksbúningi í allri keppni á meðan á mótinu stendur.
Skráning á mótið fer fram föstudaginn 20. maí á skrifstöfu Fáks í Reiðhöllinni á milli kl 20 og 22 gegn greiðslu skráningargjalda. Einnig er unnt að skrá í síma 567 0100 með því að gefa upp kortanúmer til greiðslu skráningargjalda. Ekki er tekið við skráningum nema kennitala knapa og IS númer hests liggi fyrir.
Keppnisgreinar eru eftirfarandi:
• A flokkur gæðinga
• A flokkur gæðinga áhugamenn
• B flokkur gæðinga
• B flokkur gæðinga áhugamenn
• Barnaflokkur
• Unglingaflokkur
• Ungmennaflokkur
• 100 m skeið
• 150 m skeið
• 250 m skeið
• Tölt T1 aldurstakmark 18 ára á árinu og eldri. Einn inn á í einu og riðið eins og meistaraflokkur.
Skráningargjald í gæðingakeppni og skeið er kr. 3.500,-. Skráningargjald í töltið er kr. 5.000,-. Tölt, kappreiðar og fljúgandi skeið er opið öllum að teknu tilliti til aldurs en aðrar greinar eru eingöngu fyrir skuldlausa Fáksfélaga þar sem þar fer fram úrtaka Fáks fyrir Landsmót 2011. Í gæðingakeppninni þarf hesturinn að vera í eigu Fáksfélaga og hann þarf að vera skuldlaus. Mótanefnd Fáks áskilur sér rétt til þess að fella niður keppnisflokka ef þátttaka telst ekki næg.
ATH: skráning fer ekki fram fyrr en skráningargjald hefur verið greitt!
Að venju ríða áhugamenn í A og B flokki með atvinnumönnum en áhugamenn ríða svo sérstök úrslit sunnudaginn 29 maí.
Pollar eru alltaf með á Gæðingamóti Fáks bæði vanir og óvanir. Vanir pollar ríða hægt tölt og fegurðartölt. Óvanir pollar eiga að vera teymdir af forráðamanni. Allir pollar sem eiga grímubúninga eru hvattir til að mæta í þeim. Svo má líka skreyta hestana og um að gera að láta alla regnbogans liti njóta sín. Pollum er ekki sætaraðað en þeir fá allir verðlaunabikar frá Fáki. Pollum er ekki heimilt að mæta á stóðhestum. Við pollaskráningu er gott að fá litríkar lýsingar á búningum og hestum en ekki er þörf á ISnúmeri hesta. Ekkert skráningargjald er í pollaflokk en skráning fer fram um leið og önnur skráning fer fram. Gert er ráð fyrir að pollar komi fram á Hvammsvellinum sunnudaginn 29. maí en það verður nánar auglýst þegar dagskrá liggur fyrir,“ segir í fréttatilkynningu frá Fáki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH