Auglýst er til umsóknar staða reiðkennara við Hestafræðideild Háskólans á Hólum.
Auglýst er til umsóknar staða reiðkennara við Hestafræðideild Háskólans á Hólum. Hestafræðideild háskólans veitir fagmenntun á sviði hestafræða, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu og vinnur að þróun og nýsköpun fræðasviðsins í rannsóknastarfi.
Starfssvið
• Reiðkennsla (verkleg og bókleg) og tengd verkefni.
• Þjálfun á hestakosti háskólans.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Reiðkennaramenntun og reynsla af reiðkennslu.
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu.
Um er að ræða tímabundna ráðningu frá 1. janúar til 30. júní 2023.
Launakjör eru skv. kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur um starfið er til 23. desember 2022.
Vinsamlega sendið umsóknir ásamt ferilsskrá og staðfestingu á menntun á netfangið [email protected] og [email protected] merkt reiðkennari.
Nánari upplýsingar um starfið veita Elisabeth Jansen deildarstjóri ([email protected]) og Mette Mannseth ([email protected]). Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH