Herdís var vakin af jólasveinum einn aðfangadagsmorgun
Herdís Björg Jóhannsdóttir er knapi í U21 landsliðshópi Íslands. Hún kemur úr hestamannafélaginu Spretti í Kópavogi en hún býr í Pulu í Rangárvallasýslu ásamt fjölskyldu sinni. Hún stundar nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands og ríður út þessa á milli.
Herdís Björg er viðmælandi í Jólamola dagsins
Jólamolar Eiðfaxa munu birtast reglulega fram að jólum en þar fáum við að kynnast alls konar hestamönnum í öðru ljósi og komast að því hvað það er sem kemur þeim í jólaskap.
Hvað ert þú að brasa þessa dagana?
Ég er í FSu en er í jólafríi núna. Þannig ég er bara vinna út í hesthúsi.
Með hvaða hrossa stefnirðu á Heimsmeistaramót og í hvaða grein?
Ég stefni með Snædísi frá Forsæti í gæðingaskeið og fimmgangsgreinar og Kvarða frá Pulu í tölt.
Hvort myndirðu skilgreina þig sem Elf eða The Grinch?
Ég myndi segja að það fer eftir því hvort þú hittir á mig þegar ég er nývöknuð eða ekki.
Hver er þín uppáhalds jólaminning?
Þetta er alveg skemmtileg minning í dag en á þeim tíma fannst mér það ekkert fyndið. En þetta var þegar mamma sendi jólasveina inn í herbergið mitt á aðfangadagsmorgun til að vekja mig.
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið?
Höfuðleðrið sem er ennþá notað í dag sem ég fékk í jólagjöf þegar ég var þriggja ára.
Hver er uppáhalds jólahefðin þín?
Möndluísinn, því það er allt skemmtilegra með keppni.
Hvert er þitt uppáhalds jólalag?
Snjókorn falla, en annars er ég ekki mjög hrifin af jólalögum.
Hver er þín uppáhalds jólamynd?
Ég held að það sé bara Home Alone.
Hvað borðar þú á aðfangadag?
Hamborgarhrygg.
Hvað langar þig í jólagjöf í ár?
Eitthvað í hesthúsið er alltaf klassískt.
Hvað kemur þér í jólaskap?
Þegar mandarínurnar eru komnar í búðirnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH