Söru Dís langar í kerti og spil

  • 23. desember 2022
  • Fréttir
Jólamoli Eiðfaxa

Sara Dís Snorradóttir er knapi í U21 landsliðshópi Íslands. Hún kemur úr hestamannafélaginu Sörla í Hafnarfirði þar sem hún býr og stundar nám og ríður út öllum stundum.

Sara Dís er viðmælandi í Jólamola dagsins

Jólamolar Eiðfaxa munu birtast reglulega fram að jólum en þar fáum við að kynnast alls konar hestamönnum í öðru ljósi og komast að því hvað það er sem kemur þeim í jólaskap.

Hvað ert þú að brasa þessa dagana ?
Njóta þess að vera komin í jólafrí og ríða út.

Með hvaða hrossa stefnirðu á Heimsmeistaramót og í hvaða grein?
Engil frá Ytri-Bægisá í fimmgangsgreinar.

Hvort myndirðu skilgreina þig sem Elf eða The Grinch?
Að sjálfsögðu Elf

Hver er þín uppáhalds jólaminning?
Þegar að ég er að opna alla pakkana og borða góðan mat, klikkar ekki.

Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið?
Þegar ég fékk síma í jólagjöf, ég átti allavega ekki von á því.

Hver er uppáhalds jólahefðin þín?
Á aðfangadag að vera allan daginn upp í hesthúsi að fara á uppáhalds hestana mína og vera svo mætt í mat klukkan 6.

Hvert er þitt uppáhalds jólalag?
Þegar þú blikkar með Herra hnetusmjör og Bó

Hver er þín uppáhalds jólamynd?
Home Alone 2

Hvað borðar þú á aðfangadag?
Hamborgarahrygg af bestu gerð

Hvað langar þig í jólagjöf í ár?
Kerti og spil

Hvað kemur þér í jólaskap?
Góður reiðtúr í snjónum á góðum hesti.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link