Þórgunnur elskar jólin og allt sem þeim fylgir
Þórgunnur Þórarinsdóttir er knapi í U21 landsliðshópi Íslands. Hún býr á Sauðárkróki ásamt fjölskyldu sinni þar sem hún stundar nám í FNV. Hún keppir fyrir hestamannafélagið Skagfirðing.
Þórgunnur er viðmælandi í Jólamola dagsins
Jólamolar Eiðfaxa munu birtast reglulega fram að jólum en þar fáum við að kynnast alls konar hestamönnum í öðru ljósi og komast að því hvað það er sem kemur þeim í jólaskap.
Hvað ert þú að brasa þessa dagana ?
Ég er ný komin í jólafrí frá skólanum þannig all flestar stundir eru nýttar í hesthúsinu að þjálfa og undirbúa mig fyrir komandi keppnistímabil
Með hvaða hrossa stefnirðu á Heimsmeistaramót og í hvaða grein?
Ég stefni með þá Hnjúk frá Saurbæ og Djarf frá Flatatungu. Hnjúk í fjorgangsgreinar og Djarf í fimmgangsgreinar.
Hvort myndirðu skilgreina þig sem Elf eða The Grinch?
Ég mundi frekar skilgreina mig sem Elf. Ég elska jólin og allt sem fylgir þeim.
Hver er þín uppáhalds jólaminning?
Á margar góðar minningar frá jólunum. Þegar ég fékk möndluna í fyrsta skiptið í möndugrautnum er ein af þeim.
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið?
Það sem kemur fyrst upp í hugan er sleði sem ég fékk frá mömmu og pabba þegar ég var 6 eða 7 ára.
Hver er uppáhalds jólahefðin þín?
Að fara með pabba að sækja jólatré í skóginn á Hólum eða laufabrauðsgerð í sveitinni.
Hvert er þitt uppáhalds jólalag?
Nóttin var sú ágæt ein
Hver er þín uppáhalds jólamynd?
Home alone myndirnar
Hvað borðar þú á aðfangadag?
Lambahamborgarahrygg með brúnuðum kartöflum og jólasalati
Hvað langar þig í jólagjöf í ár?
Bara eitthvað sem kemur að góðum notum
Hvað kemur þér í jólaskap?
Að hlusta á jólalög og mandarínurnar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH