Björg tekur bestu hestana til kostanna á Aðfangadag
Björg Ingólfsdóttir er knapi í U21 landsliðshópi Íslands. Hún kemur úr hestamannafélaginu Skagfirðing en hún býr á Dýrfinnustöðum í Skagafirði.
Björg er viðmælandi í Jólamola kvöldsins
Jólamolar Eiðfaxa munu birtast reglulega fram að jólum en þar fáum við að kynnast alls konar hestamönnum í öðru ljósi og komast að því hvað það er sem kemur þeim í jólaskap.
Hvað ert þú að brasa þessa dagana ?
Ég er að temja og þjálfa á Dýrfinnustöðum
Með hvaða hrossa stefnirðu á Heimsmeistaramót og í hvaða grein?
Ég stefni með Kjuða frá Dýrfinnustöðum í fimmgangsgreinar.
Hvort myndirðu skilgreina þig sem Elf eða The Grinch?
Allan daginn The Grinch
Hver er þín uppáhalds jólaminning?
Engin spes
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið?
Úff… sennilega leikfanga bóndabærinn sem ég fékk þegar ég var þriggja ára.
Hver er uppáhalds jólahefðin þín?
Leggja á besta hestinn í húsinu og taka hann til kostanna á Aðfangadag.
Hvert er þitt uppáhalds jólalag?
Christmas (Baby please come home)
Hver er þín uppáhalds jólamynd?
Sennilega Home Alone.
Hvað borðar þú á aðfangadag?
Hreindýrakjöt
Hvað langar þig í jólagjöf í ár?
Bara eitthvað sniðugt.
Hvað kemur þér í jólaskap?
Sitja á góðum hesti í snjókomu með jólatónlist í eyrunum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH