2.350 hross sýnd á 47 sýningum
Viðar frá Skör er hæst dæmda hross ársins 2022 og hæst dæmda hrossið frá upphafi. Sýnandi Helga Una Björnsdóttir Mynd: Nicki Pfau
Árið 2022 voru sýnd 2.350 hross, þar af hlutu 1.819 af þeim fullnaðardóm. Haldnar voru 47 sýningar í 10 löndum, Austurríki, Belgíu, Danmörku (6), Finnlandi, Þýskalandi (5), Íslandi (22), Hollandi (2), Noregi (3), Svíþjóð (5) og Bandaríkjunum.
Í WorldFeng er hægt að sjá frekari upplýsingar um öll þessi hross og dóma þeirra en hægt er að fletta upp einstakri sýningu eða einstaka hrossi.
Það kemur kannski engum að óvart að langflest hrossin voru sýnd á Íslandi eða 1.270 hross sýnd í fullnaðardómi, það eru tæp 70%. 857 hryssur voru sýndar og 413 stóðhestar.
Löndin sem eru á eftir okkur með flest hross sýnd í fullnaðardómi eru Svíþjóð 163 hross, Þýskaland 145 hross, Danmörk 121 hross og 47 hross í Noregi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH