Njála efst í Danmörku

  • 23. desember 2022
  • Fréttir

Stormur frá Lysholm er hæst dæmdi dansk fæddi hesturinn í Danmörku. Mynd: Magasinettolt.dk

Ríflega 40.000 hross eru í Danmörku

FEIF heldur utan um alls konar staðreyndir og tölfræði tengda aðildarlöndum sínum.  Samkvæmt tölum FEIF er Danmörk það land sem er með þriðja mestan fjölda af skráðum hrossum á lífi eða 41.442 talsins. Fjöldi hrossa hefur verið á bilinu 40 – 45 þúsund síðustu fimm árin.

Fjöldi skráðra hrossa á lífi í Danmörku síðustu fimm ár

 

121 hross voru sýnd í fullnaðardóm í Danmörku í ár á sex kynbótasýningum. Það hefur aftur átt sér stað aukning í fjölda fullnaðardæmdra hrossa sem fór smá niður á við árið 2019. Af þessum 121 hrossi eru 76 hross fædd í Danmörku. Flest hross voru skráð á kynbótasýninguna í Herning 10. – 12. júní. Dómarar á sýningunni voru Silke Feuchthofen (DE), Nina Bergholtz (SE) og Óðinn Örn Jóhannsson (IS).

Fjöldri sýnda hrossa í fullnaðardóm í Danmörku

 

Efsta hrossið sem sýnt var í Danmörku er Njála vom Kronshof en hún hlaut 8,47 í aðaleinkunn, hún var jafnframt með hæstu hæfileika einkunnina 8,55. Hæst dæmda danskt fædda hrossið er Stormur fra Lysholm en hann hlaut 8,36 í aðaleinkunn, 8,14 fyrir sköpulag og 8,48 fyrir hæfileika.

Hæstu sköpulagseinkunnina hlautu þeir Náttfari fran Gunvarbyn og Taktur fra Rank en þeir hlutu báðir 8,79 fyrir sköpulag. Náttfari hlaut 8,15 fyrir hæfileika og 8,38 í aðaleinkunn. Taktur hlaut 7,52 fyrir hæfileika og 7,97 í aðaleinkunn. Náttfari er fæddur í Svíþjóð.

Meðalaldur þeirra hrossa sem hlutu fullnaðardóm í Danmörku er 6,10 ár. Meðaltal sköpulagseinkunnar er 8,05, hæfileikaeinkunnar er 7,76 og aðaleinkunnar 7,86. 36 hross hlutu fyrstu verðlaun, 22 af þeim eru fædd í Danmörku.

Agnar Snorri Stefánsson sýndi flest hross í Danmörku eða 27 talsins en næstur á eftir honum er Sigurður Óli Kristinsson með 19 hross

Tíu hæst dæmdu hrossin í Danmörku

Fæðingarnúmer  Nafn Uppruni í þgf, Sýnandi Aðaleinkunn
DE2015234888 Njála Kronshof Kronshof GbR 8,47
IS2017188026 Krókur Háholti Sigurður Óli Kristinsson 8,44
SE2014106693 Náttfari Gunvarbyn Anne Stine Haugen 8,38
DK2017100190 Stormur Lysholm Debelmose Isheste v, Søren Madsen 8,36
DK2016200137 Góa Skovhuset Søren Madsen 8,33
DE2016134224 Óríon Kronshof Kronshof GbR 8,32
IS2014288690 Vísa Efri-Brú Søren Madsen 8,31
IS2015182088 Funi Akri Rasmus Møller Jensen 8,3
DK2016100459 Húni Stutteri Sonne Agnar Snorri Stefansson 8,28
DK2017100317 Baltasar Guldbæk Rasmus Møller Jensen 8,27
DE2016234181 Oddný Kronshof Kronshof GbR 8,27

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link