Þúfur er Ræktunarbú ársins í Skagafirði
Uppskeruhátíð hrossaræktarsambands Skagafjarðar var haldin síðast liðinn þriðjudag, 13. desember. Veitt voru verðlaun fyrir efstu þrjú kynbótahrossin í hverjum aldursflokki. Sörlabikarinn var veittur fyrir hæst dæmda kynbótahrossið innan HSS og einnig voru veitt verðlaun fyrir kynbótaknapa ársins. Tilnefnd til kynbótaknapa ársins voru þau Bjarni Jónasson, Mette Mannseth og Þórarinn Eymundsson. Einnig var hrossaræktarbú ársins í Skagafirði verðlaunað en tilnefnd voru Hestklettur, Hólaskóli og Þúfur.
Þau Mette Mannseth og Gísli Gíslason fóru heim drekkhlaðin af verðlaunum. Ræktunarbú þeirra, Þúfur, er Ræktunarbú ársins í Skagafirði. Lýsing frá Þúfum og Grýla frá Þúfum hlutu báðar viðurkenningar en þær hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í haust. Einnig hlutu þau Sörlabikarinn en Hannibal frá Þúfum var hæst dæmda hrossið í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta og hæst dæmda hrossið ræktað af félaga í HSS. Einnig voru þau ræktendur af Klukku frá Þúfum sem var önnur í flokki 5 vetra hryssna, Grímar frá Þúfum var annar í flokki 4 vetra stóðhesta og Töfri frá Þúfum var annar í flokki 6 vetra stóðhesta.
Þórarinn Eymundsson hlaut nafnbótina Kynbótaknapi ársins hjá HSS.
Efstu kynbótahross Skagafirði 2022 (ræktuð af félögum í HSS)
Hryssur
4 vetra
Agla frá Tölthólum A. 8,16 H. 8,02 B. 8,44
Eldey frá Prestsbæ A. 8,15 H. 8,05 B. 8,34
Frísk frá Prestsbæ A. 8,11 H. 8,13 B. 8,06
5 vetra
Hringsjá frá Enni A. 8,33 H. 8,39 B. 8,20
Klukka frá Þúfum A. 8,21 H. 8,18 B. 8,28
Kjarnorka frá Flugumýri A. 8,18 H. 8,15 B. 8,24
6 vetra
Staka frá Hólum A. 8,49 H. 8,49 B. 8,49
Þenja frá Prestsbæ A. 8,49 H. 8,39 B. 8,67
Grá frá Hofi á Höfðaströnd A. 8,44 H. 8,47 B. 8,39
7 vetra og eldri
Álfamær frá Prestsbæ A. 8,87
Gjöf f. Hofi á Höfðaströnd A. 8,60
Kamma frá Sauðárkróki A. 8,55
Stóðhestar
4 vetra
Ambassador frá Bræðraá A. 8,39 H. 8,45 B. 8,28
Grímar frá Þúfum A. 8,25 H. 8,21 B. 8,33
Kvikur frá Nautabúi A. 8,01 H. 7,85 B. 8,29
5 vetra
Fróði frá Flugumýri A. 8,58 H. 8,54 B. 8,64
Sigurfari frá Sauðárkróki A. 8,41 H. 8,57 B. 8,11
Suðri frá Varmalandi A. 8,23 H. 8,18 B. 8,31
6 vetra
Frami frá Hjarðarholti A. 8,50 H. 8,58 B. 8,35
Töfri frá Þúfum A. 8,46 H. 8,48 B. 8,43
Síríus frá Tunguhálsi A. 8,18 H. 8,19 B. 8,16
7 vetra og eldri
Hannibal frá Þúfum A. 8,68 H. 8,69 B. 8,66
Skarpur frá Kýrholti A. 8,63 H. 8,64 B. 8,61
Seiður frá Hólum A. 8,60 H. 8,58 B. 8,63
Heiðursverðlaunaverðlaun fyrir afkvæmi -Hryssur (eigendur sem rækta undan hryssunni þurfa að vera félagar í HSS)
Píla f. Syðra-Garðshorni
Grýla f. Þúfum
Lýsing f. Þúfum

Eyþór Einarsson kynnti og afhenti verðlaunin
Heiðursverðlaun – Stóðhestar
Hrannar frá Flugumýri (búinn að fá 2020) Verðlaunaður þá af HSS

Harpa og Bjössi taka við verðlauna fyrir Kná frá Ytra-Vallholti
1.verðlaun fyrir afkvæmi -stóðhestar (ræktandi stóðhestsins-félagi í HSS)
Knár frá Ytra-Vallholti
Lord frá Vatnsleysu (búinn að fá 2020) Verðlaunaður þá af HSS.
Sörlabikarinn. Hæst dæmda einstaklingshrossið, ræktað og eigandi á lögheimili í Skagafirði (skv. reglum um Sörlabikarinn)
Hannibal frá Þúfum

Fulltrúar hrossaræktarbúanna sem voru tilnefnd; Þúfur, Hólaskóli og Hestklettur
Ófeigsbikarinn. Hrossaræktarbúið: Þúfur
Tilnefningar: Hestklettur og Hólaskóli
Kraftsbikarinn. Kynbótaknapinn: Þórarinn Eymundsson
Tilnefningar: Bjarni Jónasson og Mette Mannseth
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH