„Legg til að við fækkum mótsdögum“
Ræktendur í Litlu-Brekku í Eyjafirði eru þau Vignir Sigurðsson og Jónína Garðarsdóttir. Þau búa í Litlu-Brekku ásamt yngstu dóttur þeirra, Bjarneyju Viðju og pabbi Jónínu, Garðar, býr líka á jörðinni. Jörðin er um 45 ha. ásamt óskiptu heimalandi.
Hrossaræktin í Litlu-Brekku hófst árið 1999 þegar þau keyptu jörðina. Í dag eru 19 hross á útigangi og þrettán á húsi. Þau Vignir og Jónína eru að fá um fimm folöld á ári. “Helstu ræktunarhryssur eru heiðursverðlaunahryssan Esja-Sól (8,27 í aðaleinkunn), dóttir hennar Evíta (8,51), heiðursverðlaunahryssan Stilla (8,08) og dóttir hennar Sátt (8,10) og Líf (ósýnd),” segir Vignir en allar hryssurnar eru fæddar í Litlu-Brekku og eru nokkrar spennandi hryssur í þjálfun sem stefnt er á að bæta í hryssuhópinn.
Vignir hélt undir þá Hannibal frá Þúfum, Snilling frá Íbishóli, Ský frá Skálakoti, Sindra frá Hjarðartúni og Eyfjörð frá Litlu-Brekku í sumar en Eyfjörð er eitt af efnilegustu trippunum í Litlu-Brekku. Á fimmta vetur undan Þráni frá Flagbjarnarholti og Esju-Sól. “Unghrossin eru ekki mörg hjá okkur en við erum með hann Eyfjörð á járnum og tvö önnur trippi á fjórða vetur, geldingur undan Kná frá Ytra-Vallholti og Esju-Sól og hryssu undan Kná og Stillu. Mjög skemmtileg tryppi,” bætir hann við.
Vignir hefur verið ötull á keppnisvellinum og keppir mikið á hrossum úr sinni eigin ræktun. Hann er með þau Stjörnuþoku (Pistilsdóttur), Stilli (Stálason) og Stjörnusól (Draupnisdóttur) í þjálfun og stefnir með þau í keppni í vetur og sumar. Stjörnuþoka var sýnd í sumar á Hólum og fór þar í góðan dóm en hún hlaut m.a. 9,5 fyrir tölt. “Kynbótadómur hennar er einn af hápunkt ársins. Þá var líka ánægjulegt þegar Stilla mamma hennar hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í haust,” nefnir hann.

Stilla þegar hún var fimm vetra.
Þau Vignir og Jónína létu sig ekki vanta á Landsmót hestamanna í sumar. Vignir var ánægður með mótið en vill fara sjá breytingar á dagskrá mótsins með það í huga að stytta og létta mótið. “Ég myndi leggja til að við fækkuðum mótsdögum í 4-5 og veltum fyrir okkur hvaða keppnisgreinar og fyrirkomulag þeirra myndi ganga upp innan þess tímaramma. Þá þarf að mínu mati að endurhugsa fyrirkomulag kynbótasýninga á LM með það að markmiði að gera þær áhorfendavænni og hestvænni. Held að einhverskonar yfirlitssýningaform með opnum dómi væri áhugavert að prófa,” segir hann en honum leist mjög vel á kynbótastarfið í ár, mörg frábær hross komu fram og sýndist honum vera mikill áhugi á sýningunum.
“Það er mikill kraftur í ræktunarstarfinu. Margir sem rækta hross og kerfið gefur að mínu mati hverjum og einum svigrúm til að hafa sínar áherslur. Það yrði mikil framför ef við gætum tekið keppnisárangur inn í kynbótamatið. Kynbótamatið í dag hlýtur að byggja að mestu á gæðum hryssna og stóðhesta en vægi geldinga er mjög lítið sem er samt sem áður stór hluti hrossastofnsins. Verðmætasköpunin fer einnig að stóru leyti fram í gegn um keppnisárangur hrossa og því vona ég að þetta komi inn sem fyrst,” segir Vignir að lokum.
Jólaspurningar:
Hver er uppáhalds jólahefðin?
Kannski engin ein uppáhalds en bara að fjölskyldan komi saman og borði góðan mat og grípi í spil er eiginlega það sem stendur upp úr.
Eftirminnileg jólagjöf:
Frúin gaf mér forláta rakvél fyrir nokkrum áratugum. Mér gengur illa að gleyma henni þar sem ég er minntur reglulega á að ég eigi nú þessa fínu rakvél upp í skáp sem væri allt í lagi að nota annað slagið.
Hvernig eru áramótin?
Borðum góðan mat með vinum og fjölskyldu. Skjótum ekki upp flugeldum en stundum er rennt inn á Akureyri til að sjá dýrðina.
Hvað er í matinn á jólunum?
Hamborgarahryggur, brúnaðar kartöflur og meðlæti.
Uppáhalds jólasveinninn?
Geri ekki upp á milli þessara snillinga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH