Undir hvern fóru þær?
„Undir hvern fóru þær?“ hafa alltaf verið vinsælar greinar hér á vefnum. Ræktendur virðast hafa mikinn áhuga á því að sjá hvaða stóðhesta aðrir eru að velja á hryssurnar sínar. Eiðfaxi heldur áfram að taka fyrir nokkrar af þeim hryssum sem hlutu heiðursverðlaun á Haustráðstefnu Fagráðs nú í nóvember.
Hrefna frá Vatni er undan Álfi frá Selfossi og Teklu frá Vatni en hún er ræktuð af þeim Sigurður Hrafni Jökulssyni og Helgu Halldóru Ágústsdóttur og er í eigu Sigurðar Hrafns. Hrefna á fimm sýnd afkvæmi og er hæst dæmda afkvæmi hennar Þorinn frá Vatni sem eru undan Spuna frá Vesturkoti. Þorinn hlaut í aðaleinkunn 8,24, fyrir sköpulag 8,12 og fyrir hæfileika 8,32. Hrefnu var haldið undir Sólon frá Þúfum í sumar
Kreppu frá Feti var haldið undir Ský frá Skálakoti og er þetta í annað sinn sem Kreppu er haldið undir Ský. Til er undan þeim fjögurra vetra hryssa Villimey frá Feti sem hlaut fyrstu verðlaun í vor, 8,10 í aðaleinkunn. Kreppa er undan Árna Geir frá Feti og Jósefínu frá Feti. Ræktandi Kreppu er Brynjar Vilmundarson en hún er í eigu Fetbúsins. Kreppa á fimm sýnd afkvæmi, alsysturnar Kilja og Mekkín eru hæst dæmdu afkvæmi hennar. Þær eru undan Kiljani frá Steinnesi og hlutu báðar 8,33 í aðaleinkunn. Kilja hlaut 8,33 fyrir sköpulag og hæfileika og Mekkín hlaut 8,46 fyrir sköpulag og 8,24 fyrir hæfileika.
Heilladís frá Selfossi er undan heiðursverðlaunahryssunni Álfadísi frá Selfossi og Suðra frá Holtsmúla 1. Olil Amble á og ræktaði hryssuna. Heilladís á fimm sýnd afkvæmi. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Framasonurinn Galdur frá Syðri-Gegnishólum en hann hlaut 8,04 fyrir sköpulag, 8,12 fyrir hæfileika sem gerir 8,10 í aðaleinkunn. Heilladís var haldið undir Stála frá Kjarri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH