“Alltaf að verða erfiðara að halda í við þá bestu”

  • 27. desember 2022
  • Fréttir
Viðtal við hrossaræktendur á Horni

Horn í Hornafirði er u.þ.b. 7.500 ha. jörð með firði, fjöllum og fjörum. Ábúendur eru þau Ómar Antonsson, Kristín Gísladóttir, Ómar Ingi Ómarsson og Jasmina Koethe.

“Pabbi hefur ræktað hross mjög lengi, byrjaði eitthvað í kringum 1980, en við feðgar tókum U-beygju í hrossarækt árið 1999 og var tekin ákvörðun að við skyldum kaupa alvöru hryssur og rækta gæðinga. Daníel Jónsson var okkur til halds og traust í því verkefni að koma okkur upp ættgóðum hryssum sem myndu henta til framræktunar,” segir Ómar Ingi en í dag eru þeir feðgar að fá níu til ellefu folöld á ári þó planið sé alltaf að vera frekar í kringum sex folöld á ári.

“Okkar farsælasta ræktunarhryssa er Flauta frá Horni en hún festir því miður ekki fang lengur en er við hestaheilsu. Aðrar hryssur eru þær Grús (8,16), Krús (8,00), Steinunn (8,06), Ásgerður (8,28), Víóla, Vala og Snædís (8,21), allar frá Horni, Hera frá Sæfelli (8,08), Messa frá Reykjavík (8,13) og Aníta frá Kollaleiru (7,92),” segir Ómar Ingi og bætir við að hann sé sennilega að gleyma einhverri.

Í sumar fóru þeir feðgar með hryssurnar sínar undir Organista frá Horni, Sindra frá Hjarðartúni, Viljar frá Auðsholtshjáleigu, Hulinn frá Breiðstöðum. “Við notuðum síðan tvo unga fola hérna heima þá Laufa og Jaka frá Horni en hann er bróðir Kolbeins frá Horni sem er keppnishesturinn hennar Signýjar Sólar Snorradóttur. Þau urðu Íslandsmeistarar síðustu tvö sumur og voru einnig stórkostleg á síðasta Landsmóti í ungmennaflokknum,” segir hann en hann var sáttur með Landsmótið þrátt fyrir bleytu. “Hestakosturinn var frábær og gæsahúðar augnablikin nokkur. Magnað að horfa á öll þessi hross bæði gæðingakeppnismegin og í kynbótabrautinni.”

Á Landsmótinu hlaut Organisti fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi sem Ómar segir hafa verið mikinn heiður og hápunkt ársins hjá þeim.

“Mér finnst samt kynbótastarfið vera í miklum ólestri hjá þeim sem bera á því ábyrgð. Ef maður les textana sem fyrstu verðlauna afkvæmahestarnir fengu þá er ekkert sem bendir til að við ættum að nota þá heldur þvert á móti ættum við að forðast þá, svo fallegir voru textarnir. Á afkvæmasýningunni þá gat íslenski þulurinn hvorki talað né þekkt hrossin. Á svona stað og stundu, gleðistund, á að notast við besta fólkið í þau störf sem það fæst í. Við erum að leggja alla sál okkar og fullt af peningum í hrossaræktina og það þarf að virða,” segir Ómar Ingi og bætir við að ræktunarstarfið sjálft sé á góðri leið enda hrossin alltaf að verða betri, stærri og fallegri. “Það er alltaf að verða erfiðara að halda í við þá bestu. Við erum klárlega á réttri leið.”

Það er nóg um að vera framundan hjá þeim á Horni en í augnablikinu eru 25 hross á húsi. “Jaki frá Horni er í algjöru uppáhaldi hjá mér núna. Líka Steingerður, hryssa undan Álfakletti og Grús, en hún er einstök hryssa sem alltaf er að bæta sig. Hún fékk 8,41 í aðaleinkunn í sumar, fimm vetra. Við höfum miklar væntingar til hennar. Síðan erum við með Laufa, Líf og auðvitað Organista í léttu trimmi. Það er nú ekki stefnt neitt sérstakt með hann nema í hryssur,” bætir Ómar við sem er einnig með tvö trippi undan Kveik, hryssu undan Flautu og hest undan Grús sem þau bera miklar vonir til. “Maður skilur vel að Kveikur sé með 10 fyrir tölt hann skilar mýktinni frá sér.”

Jólaundirbúningur er líka í fullum gangi á Horni en Ómar segir jólin ekki koma nema hann fái skötu, uppáhalds jólasveinninn sé Hurðaskellir og eftirminnilegasta jólagjöfin sé svakalega öflugur fjarstýrður bíll sem virkaði samt ekki í nema klukkutíma. “Á áramótunum gefum við útiganginum vel, oftast svona upp úr hádegi. Einnig er nauðsynlegt að fara í skemmtilegan reiðtúr ef veður leyfir og svo er gefið í hesthúsinu. Við höldum áramótin oftast með fjölskyldu og/eða vinum á Höfn því við skjótum ekki upp flugeldum í kringum hrossin. Við erum löngu hætt að skjóta upp sjálf og förum frekar með aurinn beint í slysavarnarfélagið,” segir Ómar og að lokum hvetur hann hestamenn að mæta á Fjórðungsmót á Austurlandi næsta sumar!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link