Æskulýðsdagur í Friðheimum
Krakkar úr Grunnskóla Bláskógabyggða heimsótti Friðheima á æskulýðsdegi 18. maí sl.
„Þetta er fjórða árið sem Friðheimafólkið býður Grunnskóla Bláskógabyggðar heim í samstarfi við æskulýðsnefnd Loga. Dagurinn hefur fengið nafnið Æskulýðsdagur, þar sem börnum skólans er kynnt starfið hjá hestamannafélaginu ásamt því sð fá fræðslu um íslenska hestinn og reiðmennsku á Friðheimum, en Knútur Ármann hefur kennt við skólann hestamennsku í vali í nokkur ár.
Unglingarnir í hestavalinu teymdu undir yngri börnum og sýndu þeim svo flotta sýningu á hestum. Þar voru gangtegundir íslenska hestsins kynntar, þrjár stúlkur sýndu hesta í tvítaum. Þá voru ásetuæfingar og hindrunarstökk ásamt glæsilegri munsturreið í búningum.
Þetta var í alla staði glæsilegt hjá unglingunum og greinilegt að þarna eru margir upprennandi knapar á ferð.
Við hjá æskulýðsnefnd Loga þökkum mikið vel fyrir daginn og heimboðið að Friðheimum,“ segir í tilkynningu frá æskulýðsnefnd Loga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH