Tangó efstur í Hollandi

  • 30. desember 2022
  • Fréttir

Tangó vom Mönchhof Mynd: Hestamyndi

Kynbótasýningar í Hollandi

FEIF heldur utan um alls konar staðreyndir og tölfræði tengda aðildarlöndum sínum. Samkvæmt tölum FEIF er Holland sjötta landið á eftir okkur í fjölda á skráðum hrossum á lífi. 7.466 hross eru sögð vera í Hollandi en fjöldi hrossa þar hefur verið nokkuð stöðugur síðustu ár.

Fjöldri skráðra hrossa á lífi í Hollandi síðast liðinn 5 ár

12 hross voru sýnd í fullnaðardóm í Hollandi í ár á einni sýningu sem haldin var í júní. Dómarar voru John Siiger Hansen (DK) og Nina Bergholz  (DK). Af þessum tólf hrossum hlutu tvö fyrstu verðlaun, bæði fædd í Þýskalandi.

Tangó vom Mönchhof var hæst dæmdi hesturinn í Hollandi. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,24, fyrir hæfileika 8,19 og í aðaleinkunn 8,21. Hann er undan Tind frá Varmalæk og Náttrúnu von Tröllastaðir. Tangó er 8 vetra og er Jens Füchtenschnieder ræktandi og eigandi.

Hæstu sköpulagseinkunnina hlaut Stelkur frá Holtsmúla 1 en hann hlaut fyrir sköpulag 8,35 og fyrir hæfileika 7,66 sem gerir 7,90 í einkunn. Stelkur er fimm vetra og er undan Appollo frá Haukholtum og Sjöfn frá Seljabrekku.

Meðalaldur hrossanna sem hlutu fullnaðardóm í Hollandi er 7,73 ár. Meðaltal sköpulagseinkunnar er 8,00, hæfileikaeinkunnar er 7,52  og aðaleinkunnar 7,69.  Engin hross voru sýnd sem voru fjögurra vetra og eitt sýnt fimm vetra.

Hrossin sem voru fullnaðardæmd í Hollandi

Fæðingarnúmer  Nafn Uppruni í þgf, Sýnandi Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn
DE2014173929 Tangó Mönchhof Isabelle Füchtenschnieder 8,24 8,19 8,21
DE2016143360 Arður Forstwald Karly Zingsheim 8,18 7,98 8,05
AT2013241292 Faxa der Krähenweide Isabelle Füchtenschnieder 8,1 7,93 7,99
IS2017181100 Stelkur Holtsmúla 1 Mw, E, van der Veer 8,35 7,66 7,9
IS2012286071 Orka Árbakka Karly Zingsheim 7,86 7,9 7,89
IS2016186910 Jósep Feti Isabelle Füchtenschnieder 8,17 7,52 7,75
NL2015200052 Óskadís Breiðablik Mw, C,W,M, van Nunen 8,03 7,36 7,6
IS2015281117 Diljá Holtsmúla 1 Mw, E, van der Veer 7,88 7,32 7,52
NL2017100094 Arion Rósagrund Mw, C,M, Roosen 7,99 7,09 7,41
DE2014173881 Friður Stiftsmühle Dominique Zinser 7,53 7,22 7,33
DE2009241669 Gletting Lindenhof Mw, K,A, Parel 7,71 6,51 6,93

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar