Þau eru tilnefnd sem maður ársins 2022
Eiðfaxi stendur fyrir kjöri á manni ársins 2022 og geta lesendur nú tekið þátt í að velja þá manneskju sem þeim þykir eiga nafnbótina skilið. Lesendur sendu inn tilnefningar í gegnum vef Eiðfaxa og er nú búið að fara yfir þær og ljóst er hvaða sex aðilar lesendur Eiðfaxa telja eiga skilið að bera titilinn „Maður ársins 2022“.
Hér að neðan má sjá nöfn þeirra sem tilnefnd eru í stafrófsröð.
Hægt verður að greiða atkvæði til hliðar á forsíðu vef Eiðfaxa. Kosningin stendur yfir til 29. desember. Tilkynnt verður um valið á gamlársdag.
Framkvæmdastjórn Landsmóts
“Héldu frábært Landsmót sem skilaði fordæmalausum hagnaði” kemur fram í tilnefningunum.
Hans Þór Hilmarsson
“Fyrir heimsmetssýningu sína á Sindra frá Hjarðartúni,” kemur fram í tilnefningunum.
Helga Una Björnsdóttir
“Heimsmet á hestinum Viðar frá Skör og frábær fyrirmynd,” kemur fram í tilnefningunum.
Hestamannafélagið Sörli
“Fyrir forustu í æskulýðsmálum og fyrir að standa vel að nýliðunarmálum. Öflugt félag með frábæran anda,” kemur fram í tilnefningunum.
Hjörvar Ágústsson
“Auðsjáanleg og smitandi gleði sem þarf í heim hestamennskunar. Heldur úti frábæru podcasti, frábær þulur og alltaf tilbúinn í alls konar verkefni tengd hestamennskunni,” kemur fram í tilnefningunum.
Reynir Örn Pálmason
“Fyrir að standa upp fyrir kynbótaknöpum á Landsmótinu,” kemur fram í tilnefningunum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH