Héraðssýning í Hafnafirði: Kiljan sýndur í morgun – video

  • 23. maí 2011
  • Fréttir
Héraðssýning í Hafnafirði: Kiljan sýndur í morgun - video

Kynbótasýningar á Sörlastöðum hófust í morgun og standa út vikuna. Alls eru 351 hross skráð til dóms og fara yfirlitssýningar fram á laugardag og sunnudag.

Í morgun var hæfileikasprengjan Kiljan frá Steinnesi sýndur. Hlaut hann 8,66 í aðaleinkunn, 8,86 fyrir hæfileika og 8,35 fyrir sköpulag. Fékk hann einkunnina 9 fyrir bak og lend, hófa, tölt, brokk, skeið, vilja og geðslag og fegurð í reið.

Kiljan var sýndur til hæsta dóms sem 6 vetra stóðhestur hefur hlotið á Héraðssýningu í Víðidal í fyrra, þegar hann fékk 8,71 í aðaleinkunn þar af  8,96 fyrir hæfileika og 8,33 fyrir sköpulag.

Þrátt fyrir að hafa lækkað í einkunn síðan í fyrra stendur Kiljan efstur í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri sem komnir eru með landsmótslágmörk. Spennandi verður að fylgjast með Kiljan í yfirlitssýningu.

Kiljan er undan Kletti frá Hvammi og Kolfinnsdótturinni Kylju frá Steinnesi.

Meðfylgjandi er dómur Kiljans og myndskeið frá sýningunni í morgun.

 

IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi

Örmerki: 968000001776303

Litur: 1521 Rauður/milli- stjörnótt glófext

Ræktandi: Magnús Jósefsson

Eigandi: Elías Árnason, Halldór Þorvaldsson, Ingolf Nordal

F.: IS1998187045 Klettur frá Hvammi

Ff.: IS1988165895 Gustur frá Hóli

Fm.: IS1983287105 Dóttla frá Hvammi

M.: IS1993256299 Kylja frá Steinnesi

Mf.: IS1981187020 Kolfinnur frá Kjarnholtum I

Mm.: IS1984256027 Hvönn frá Steinnesi

FORSKOÐUNARDÓMUR

Héraðssýning Sörlastöðum

Mál (cm): 141 – 133 – 137 – 62 – 141 – 37 – 45 – 43 – 6,5 – 30,0 – 18,5

Hófa mál: V.fr.: 8,9 – V.a.: 8,2

Sköpulag: 7,5 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 9,0 – 6,5 = 8,35

Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 9,0 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 7,5 = 8,86

Aðaleinkunn: 8,66      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 8,0

Sýnandi: Þorvaldur Árni Þorvaldsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link