WR mót Harðar: Rakel og Stormur sigurvegarar í 2. flokki – video
Hér má sjá myndskeið frá A-úrslitum í tölti 2.flokks á nýafstöðnu WR móti Harðar og Margrétarhofs. Þar sigraði Rakel Sigurhansdóttir á Stormi frá Efri-Rauðalæk en hún hafði fyrr um daginn sigrað fjórgang og varð þar með samanlagður fjórgangssigurvegari í 2. Flokki.
Úrslit töltkeppninnar urðu eftirfarandi:
1. Rakel Sigurhansdóttir / Stormur frá Efri-Rauðalæk 6,94
2. Hilmar Binder / Örlygur frá Hafnarfirði 6,44
3. Gylfi Freyr Albertsson / Taumur frá Skíðbakka I 6,39
4.-5. Ingvar Ingvarsson / Dagfinnur frá Blesastöðum 1A 6,22
4.-5. Ragnar Ólafsson / Atgeir frá Sunnuhvoli 6,22
6. Steinar Torfi Vilhjálmsso / Toppur frá Litla-Moshvoli 6,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH