Gæðingamót Fáks: Nátthrafn og Halldór sigruðu töltið

  • 28. maí 2011
  • Fréttir
Gæðingamót Fáks: Nátthrafn og Halldór sigruðu töltið

Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi sigruðu töltkeppni Gæðingamóts Fáks rétt í þessu, með lokaeinkunnina 8,22. Fékk hann 100.000 kr. peningaverðlaun fyrir sigurinn. Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki var í öðru sæti með einkunnina 8,17 og fékk hann 30.000 kr. í vasann og Sigurbjörn Bárðason var í þriðja sæti með einkunnina 7,83 og fékk 15.000 kr.

Árni Björn Pálsson og List frá Vakurstöðum afskráðu sig úr keppni fyrir úrslit. 
 
Úrslit urðu þessi:
 
1. Halldór Guðjónsson / Nátthrafn frá Dallandi – 8,22
2. Hinrik Bragason / Sigur frá Hólabaki – 8,17
3. Sigurbjörn Bárðarson / Jarl frá Mið-Fossum – 7,83
4. Sigurbjörn Viktorsson / Emilía frá Hólshúsum – 7,56
5. Berglind Ragnarsdóttir / Frakkur frá Laugavöllum – 6,83 (missti skeifu í lokahluta keppninnar)

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link