Við hesthúshorn Sleipnis – Guðni Ágústsson skrifar

  • 17. maí 2011
  • Fréttir
Við hesthúshorn Sleipnis - Guðni Ágústsson skrifar

Helgin var stór hjá Sleipnismönnum á Brávöllum, þar fór fram íþróttamót félagsins. Það gladdi margan að sjá á þessu opna móti hvað Sleipnismenn voru vel ríðandi og komu vel undan vetri…

Íþróttamót er uppgjör knapanna þannig að mörgum hitnar í hamsi og tár gleðinnar falla og einhverjir missa af tækifærinu eins og gerist. Brekkurnar voru fullar af bílum hlið við hlið margir þéttsetnir allt í kringum völlinn. Mótið vel sótt  margir keppendur og sjálfboðaliðar að störfum. Hún Elsa Magnús-dóttir á Sólvangi var mótstjóri stýrði mótinu faglega, í hennar liði voru ungir strákar sem allir eru að gera það gott í hestamennskunni, margir frændur mínir. Ég var staddur uppá Hallandaengjum í Hraungerðishreppi og sat úti við þegar ég tók að heyra rödd eins og af himnum sem var að lýsa knöpum og góðhestum. Í fyrstu vissi ég ekki hvað var að gerast hélt að ég væri að verða vitni að undri miklu en loks þekkti ég rödd þularins Pjeturs Pjeturssonar á Sólvangi. Mér þótti honum farast verkið vel og notalegt að hlusta á hann. Hann var að vísu tengdur hátalara-kerfi það rifjaði upp fyrir mér gamla sögu úr sveitinni en þar þurftu ekki allir hátalarakerfi svo raddmiklir voru menn áður fyrr. Hátalarakerfi var auðvitað ekki til í þá daga og ekki heldur á Alþingi á Þingvelli í fornöld. Hann Ásgeir heitinn Þórarinsson vörubílstjóri á Selfossi var alinn upp á Brúnastöðum hann var glettinn og fór snemma að gera vísur. Einhverju sinni var hann að flytja mjólkina framað Litlu-Reykjum þá tók hann að heyra róminn í Páli bónda Árnasyni sem hafði óvenju hljómmikla rödd sem heyrðist á milli bæja. Þá orti Geiri þessa vísu.
                           Heyrist glymja hátt við ský
                           hugur fylgir máli.
                           Það er fár og ósköp í
                           orðunum hjá Páli.
Margt bar til tíðinda á Sleipnismótinu sem verður mönnum minnisstætt þar háðu margar stór stjörnur einvígi sáu og sigruðu. Hún Olil Amble var með stórsýningu á Kraflari frá Ketilsstöðum og sigraði bæði í tölti og fjórgangi. Einvaldurinn Einar Öder Magnússon sem kom á hinum mikla Glóðafeyki frá Halakoti varð að sætta sig við annað sætið.  Svo gerðust þau undur og stórmerki að sjálfur meistarinn Gunnar Arnarsson skoraði ungu mennina á hólm í 100 metra skeiði á Lilju frá Dalbæ,sá „gamli,“ hafði engu gleymt og sigraði á tímanum 8,11. Ungur knapi og full menntaður Tungnamaður í dag en fæddur Selfyssingur Sólon Morthens vann fimm ganginn á Fræg frá Flekkudal, glæsilegt. Ennfremur getur Haukur Baldvinsson brosað útí annað en Falur frá Þingeyrum skilaði honum 9,0 í skeiði hjá öllum dómurum. Dagmar Öder Einarsdóttir í Halakoti var efst í unglingaflokki í saman-lögðu,eplin falla sjaldan langt frá eikinni en móðir hennar hún Svana var einnig að keppa eins og faðirinn hún var með á Glódísi frá Grjóteyri. Ég sá að Páll Bragi Hólmarsson reið Snæsól til leikanna með góðum árangri það minnir á að nafnið Náttsól sem var kona í Njálu gæti líka verið nafn á fallegri hryssu.
                                                                       Guðni Ágústsson
                                                                      [email protected]
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link