Úrslit dagsins í íþróttamóti Sleipnis – myndir
Nú fer fram íþróttamót hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi. Í dag fóru fram forkeppnir allra flokka.
Sólon Morthens og Frægur frá Flekkudal eru efstir í fimmgangskeppni 1. flokks. Olil Amble leiðir í fjórgangskeppni 1. Flokks á Kraflari frá Ketilsstöðum. Glódís Rún Sigurðardóttir er efst, bæði í töltkeppni og fjórgangskeppni barna á Blesa frá Laugarvatni.
Niðurstöður þeirra má nálgast hér.
Keppni hefst aftur á morgun kl. 9 en þá fara fram úrslit allra flokka.
Dagskrá morgundagsins er eftirfarandi:
A-úrslit
Fjórgangur opinn flokkur
Fjórgangur ungmenni
Fjórgangur unglingar
B-úrslit Fimmgangur opinn flokkur
Fjórgangur börn
Tölt ungmenni
B-úrslit Tölt opinn flokkur
Hádegishlé
Kl. 13
100m. Skeið
A-úrslit Frjógangur opinn flokkur
Tölt unglingar
A-úrslit
Fimmgangur opinn
Tölt börn
A-úrslit Tölt opinn flokkur
Meðfylgjandi eru myndir tók Arnar Kjærnested í dag.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH