Gæðingamót Fáks hófst í rigningunni í Víðidal í gær með forkeppni í B-flokki gæðinga.
Mjótt er á munum milli efstu keppenda. Sveigur frá Varmalandi og Hulda Gústafsdóttir hlutu hæstu einkunn 8,62 en jöfn í 2.-3. sæti eru Sylvía Sigurbjörnsdóttir á Þóri frá Hólum og Þorvaldur Árni Þorvaldsson á Smyril frá Hrísum með einkunnina 8,55. Sylvía stendur einnig í 8. sæti á Grun frá Oddhól og er þar með með tvö hross í úrslitum. Þá fékk systir Sylvíu, Sara Sigurbjörnsdóttir á Ögra frá Hólum einkunnina 8,48 og stendur í fjórða sæti og Róbert Petersen og Magni frá Reykjavík koma fast á hæla þeirra með 8,44. Jafnir í 6.-7. sæti er Árni Björn Árnason á Furu frá Enni og Sigurður Óli Kristinsson á Húna frá Reykjavík.
Úrslit í B-flokki fara fram á sunnudag kl. 13 en þá etja kappi átta efstu hrossin.
Í dag fara hins vegar fram forkeppnir í ungmennaflokki kl. 15.30 og A-flokki gæðinga kl. 19.
Dagskrá mótsins má nálgast hér.
Meðfylgjandi eru einkunnir úr forkeppni í B-flokki gæðinga.
1 Sveigur frá Varmadal / Hulda Gústafsdóttir 8,62
2 Þórir frá Hólum / Sylvía Sigurbjörnsdóttir 8,55
3 Smyrill frá Hrísum / Þorvaldur Árni Þorvaldsson 8,55
4 Ögri frá Hólum / Sara Sigurbjörnsdóttir 8,48
5 Magni frá Reykjavík / Róbert Petersen 8,44
6-7 Fura frá Enni / Árni Björn Pálsson 8,43
6-7 Húni frá Reykjavík / Sigurður Óli Kristinsson 8,43
8 Grunur frá Oddhóli / Sylvía Sigurbjörnsdóttir 8,42
9 Ásgrímur frá Meðalfelli / Anna S. Valdemarsdóttir 8,42
10 Fókus frá Sólheimum / Fanney Guðrún Valsdóttir 8,41
11 Náttar frá Vorsabæjarhjáleigu / Anna S. Valdemarsdóttir 8,4
12 Hálfmáni frá Skrúð / Sigurbjörn Bárðarson 8,39
13 Hörður frá Hnausum II / Sigurbjörn Bárðarson 8,35
14 Gjörvi frá Auðsholtshjáleigu / Þórdís Gunnarsdóttir 8,33
15 Þöll frá Garðabæ / Þórdís Gunnarsdóttir 8,32
16 Stemma frá Holtsmúla 1 / Viðar Ingólfsson 8,32
17 Firra frá Þingnesi / Sigurþór Sigurðsson 8,31
18 Njála frá Velli II / Lena Zielinski 8,3
19 Svalvör frá Glæsibæ / Kjartan Guðbrandsson 8,29
20 Hrafnfinnur frá Holtsmúla 1 / Davíð Jónsson 8,28
21 Stormur frá Efri-Rauðalæk / Rakel Sigurhansdóttir 8,28
22 Hersveinn frá Lækjarbotnum / Bylgja Gauksdóttir 8,28
23 Plús frá Efri-Kvíhólma / Þórdís Gunnarsdóttir 8,27
24 Glefsa frá Auðsholtshjáleigu / Þórdís Gunnarsdóttir 8,27
25 Bliki annar frá Strönd / Guðmundur Jónsson 8,25
26 Vera frá Laugarbökkum / Birgitta Dröfn Kristinsdóttir 8,25
27 Hraði frá Úlfsstöðum / Sveinn Ragnarsson 8,22
28 Svali frá Feti / Sigurður Óli Kristinsson 8,21
29 Súkkó frá Kálfhóli 2 / Edda Rún Ragnarsdóttir 8,2
30 Sleipnir frá Árnanesi / Viggó Sigursteinsson 8,17
31 Carmen frá Breiðstöðum / Hugrún Jóhannesdóttir 8,16
32 Gjafar frá Hæl / Guðrún Pétursdóttir 8,07
33-34 Baldursbrá frá Vindási / Fanney Guðrún Valsdóttir 8,01
33-34 Efri-Dís frá Skyggni / Susi Haugaard Pedersen 8,01
35 Gustur frá Lambhaga / Tómas Örn Snorrason 7,96
36-37 Sleipnir frá Gunnarsholti / Guðmundur Ásgeir Björnsson 7,89
36-37 Skyggnir frá Álfhólum / Drífa Harðardóttir 7,89
38 Lyfting frá Vakurstöðum / Sóley Möller 7,88
39 Blesi frá Hvítanesi / Gunnar Jónsson 7,8
40 Gammur frá Brattholti / Guðmundur H Jóhannsson 7,58
41 Geysir frá Efri-Reykjum / Axel Ingi Eiríksson 7,35