Beðið eftir fyrstu afkvæmum Korgs – viðtal-
Korgur frá Ingólfshvoli er stjarna kynbótasýningar helgarinnar. Hann hlaut afar jafnan og góðan dóm, 8,41 í aðaleinkunn, 8,39 fyrir sköpulag og 8,42 fyrir hæfileika. Einkunnina 9 fékk hann fyrir tölt, brokk, stökk, hægt tölt, vilja og geðslag, hófa og fet og 9,5 fékk hann fyrir fegurð í reið og hægt stökk. Korgur er undan Korgu frá Ingólfshvoli og Leikni frá Vakurstöðum.
Björg Ólafsdóttir og Örn Karlsson og synir er ræktandur Korgs en þau hafa ræktað hross í nafni Ingólfshvols síðastliðinn 20 ár. „Ræktunin er byggð á ræktun sem Karl Benediktsson, faðir Arnar, og fjölskylda stóð fyrir í Gerðum. Korgur er í móðurætt úr Gerðarstofni, en Korga móðir hans er undan tveimur afkvæmum Ófeigs frá Flugumýri,“ segir Björg.
Engin afkvæmi hafa enn fæðst undan Korgi en Björg segir að nú bíði eigendur 17 hryssa spennt eftir frumburðunum. „Það er mikil spenningur í loftinu og hryssueigendur hringja sig saman og hlera fréttir því nú er vakað nótt og dag yfir þeim,“ segir Björg en von er á fjórum folöldum undan Korgi innan fjölskyldu Bjargar.
Nú er stefnt með Korg á Landsmót, en að því loknu mun hann vera í notkun í Sandhólaferju.
Meðfylgjandi eru myndir Sigurðar Sigmundssonar frá yfirlitssýningunni í gær. Auk þess er hér til hliðar örstutt video af Korgi á skautasvellinu í Laugardal en hann var þar sýndur í hléi á ísmótinu „Þeir allra sterkustu“ ásamt fleiri ungum stóðhestum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH