Sérfræðingurinn skapgóði – video-

  • 31. maí 2011
  • Fréttir
Sérfræðingurinn skapgóði - video-

Spuni frá Vesturkoti hlaut langhæsta dóm 5 vetra stóðhesta á Héraðssýningunni á Sörlastöðum á dögunum. Hann fékk 8,66 í aðaleinkunn, fyrir sköpulag 8,43 og glæsilega 8,82 fyrir hæfileika, þar af 9,5 fyrir skeið og vilja og geðslag.

Er dómurinn þriðji hæsti dómur sem 5 vetra stóðhestur hefur hlotið, á eftir dóm Þórodds frá Þóroddsstöðum frá 2004 og Olivers frá Kvistum frá 2009. Kemur því ekki á óvart að eftirspurnin eftir að fá að halda undir þessa hæfileikabombu er gríðarleg, enda segir Hulda Finnsdóttir í Vesturkoti að síminn hafi ekki stoppað síðan hann var sýndur í síðustu viku.

“Sem folald var Spuni strax mjög sérstakur í umgengni. Það vottaði aldrei fyrir hræðslu hjá honum, þvert á móti var hann forvitinn, gekk til manns í haganum og virtist velta hlutum fyrir sér,” segir Hulda Finnsdóttir í Vesturkoti. Þetta einstaka lundarfar folaldsins varð til þess að Spuni fékk viðurnefnið “Sérfræðingurinn”.

“Geðslagið er enn frábært. Í tamningu var hann fljótur að koma til. Hann er mjög gangsamur og fór strax að tölta og gerði allt sem hann var beðin um. Hann er í raun alger sérfræðingur!” segir Hulda en Ólafur Brynjar Ásgeirsson tamningamaður í Vesturkoti hefur haft umsjón með gæðingnum frá upphafi tamningar.

Nú þegar eru fædd þrettán afkvæmi undan Spuna og von er á tuttugu til viðbótar í vor. “Við settum t.a.m. eina af okkar bestu hryssum, Líf frá Þúfu, undir hann í fyrra og erum ofsalega spennt að sjá hvað kemur út úr þeirri pörun,” segir Hulda.

Spuni verður í Sandhólaferju í sæðingum í sumar. Fyrra gangmálið er frá 1. júní til 15. júní og það síðara frá 12. júlí til 20. ágúst.

Verðið fyrir folatollinn er 50.000 kr. með vsk. Þar sem hesturinn verður í sæðingum í Sandhólaferju þá þarf hryssueigandinn að greiða 50.000 kr gjald fyrir sæðinguna til dýarlæknisins í Sandhólaferju en inn í því gjaldi er sæðingin, uppihald hryssurnar og ótakmarkaður fjöldi sónarskoðana. Þetta þjónustugjald er Hryssueigendur þurfa ekki að láta sónarskoðana hryssur sínar áður en þær koma í Sandhólaferju, þeim gefst kostur á sónarskoðun þar. Hryssurnar verða síðan í umsjá þeirra í Sandhólaferju.

Þeir sem hafa í hyggju að halda undir Spuna er því bent á að hafa samband við Guðmar dýralækni í Sandhólaferju í síma 661-9112 eða Jakobínu  í síma 893-0698.

Meðfylgjandi er myndskeið af Spuna á yfirlitssýningunni á Sörlastöðum sl. sunnudag.

IS2006187114 Spuni frá Vesturkoti
Örmerki: 352206000059636
Litur: 3600 Jarpur/korg- einlitt
Ræktandi: Finnur Ingólfsson
Eigandi: Finnur Ingólfsson
F.: IS2001187660 Álfasteinn frá Selfossi
Ff.: IS1994158700 Keilir frá Miðsitju
Fm.: IS1996287660 Álfadís frá Selfossi
M.: IS1999225029 Stelpa frá Meðalfelli
Mf.: IS1987187700 Oddur frá Selfossi
Mm.: IS1989225030 Eydís frá Meðalfelli
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning Sörlastöðum
Mál (cm): 140 – 130 – 136 – 61 – 140 – 38 – 47 – 43 – 6,7 – 30,0 – 19,0
Hófa mál: V.fr.: 9,4 – V.a.: 8,5
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 7,5 – 8,0 – 8,0 = 8,43
Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 9,5 – 8,5 – 9,5 – 8,5 – 8,5 = 8,82
Aðaleinkunn: 8,66      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Þórður Þorgeirsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link