Fyrsta kynbótasýningin á Selfossi

  • 5. maí 2011
  • Fréttir

Fláki frá Blesastöðum er ekki skráður til leiks á Selfossi, en verður án efa sýndur aftur í vor.

Fimmtíu hross skráð til leiks

Hollaröð fyrir kynbótasýninguna á Brávöllum á Selfossi er nú komin á vefinn hjá okkur. Dómar fara fram dagana 9. og 10. maí n.k. og hefjast dómstörf kl. 8.00 mánudaginn 9. maí og kl. 9.00 þriðjudaginn 10. maí. Sýnendur eru beðnir að mæta tímanlega með hross til dóms þannig að þau tefjist ekki af þeim sökum. Yfirlitssýningin fer fram þriðjudaginn 10. maí og hefst kl. 12.30.

Þetta er í fyrsta skipti sem kynbótasýning fer fram á Brávöllum á Selfossi. Töluverð vinna hefur verið lögð í vallaraðstöðu þar í vor og meðal annars er nýr dómpallur á svæðinu. Völlurinn er einnig kominn í gott stand eftir veturinn. Alls eru skráð 50 hross til dóma en kynbótasýningar fara hægt af stað að þessu sinni. Sjá má hollaröðun á bssl.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link