Úrtaka fyrir Landsmót hjá Geysi
Fyrri umferð Landsmótsúrtöku hestamannafélagsins Geysis verður haldin laugardaginn 11. júní nk.
„Úrtaka verður í A-flokki og B-flokki gæðinga, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki.
Geysir má senda inn 6 keppendur í hverjum flokki. Allir skuldlausir félagar hafa þátttökurétt í úrtöku. Við viljum því minna alla þá sem eiga eftir að borga félagsgjaldið að gera það sem allra fyrst.
Þeir sem ríða fyrir Geysir á Landsmóti hestamanna 2011, ber skylda að ríða í félagsbúning Geysis á landsmótinu.
Skráninga fer fram næstkomandi mánudagskvöld 6.júní kl 19:00-22:00 á kanslaranum á Hellu og í síma 8939966 Steinn, 8642118 Hallgrímur, 8943106 Vignir.
Það sem þarf að koma fram í skráningu er IS-númer og nafn hests, nafn og kennitala eiganda, nafn og kennitala knapa, flokkur.
Seinni umferð fer fram mánudaginn 13. júní og er skráning í hana á laugardeginum 11 .júní. Lýkur skráningu í seinni umferð 2 klst eftir að keppni lýkur í fyrri umferð og fer greiðsla fram á staðnum.
Þeir Geysisfélagar sem langar að kaupa merktar félagspeysur eru beðnir að hafa samband við Lovísu í Hemlu í síma 868-2539. Til að peysurnar verða komnar fyrir landsmót eru síðustu forvöð að panta fyrir sunnudag 5. júní.
Vilji menn æfa sig fyrir úrtöku er völlurinn laus eftir yfirlitssýningu næsta laugardag 4. júní og allan sunnudaginn 5. júní,“ segir í tilkynningu frá stjórn Geysis.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH