Hver man ekki eftir þessum? Huginn frá Kjartansstöðum-

  • 10. nóvember 2011
  • Fréttir
Hver man ekki eftir þessum? Huginn frá Kjartansstöðum-

Vaskur höfðingi lifir góðu lífi á fallegum búgarði í Norður-Þýskalandi og eins sjá má á meðfylgjandi myndum er hann barnanna besta skinn. Hann á enn marga kæra félaga hér sem hugsa hlýtt til hans, enda markaði hann djúp spor í lífi þeirra á sigursælum ferli sínum. 

 
Það skipti engu hvers konar mót hann var látin spreyta sig í – alltaf gerði hann atlögu að sigrinum. Hann keppti í A og B flokki á gæðingamótum og afrekaði að sigra þá báða. Hann var margfaldur sigurvegari í töltkeppnum. Svo brá hann undir sér fljúgandi skeið og sigraði í gæðingaskeiðsgreinum. Hann varð Íslandsmeistari í fimmgang – fór svo til Sviss árið 1995 og varð þar heimsmeistari í greininni ásamt því að vera samanlagður heimsmeistari. Knapinn var Sigurður Vignir Matthíasson, þá aðeins 19 ára og Huginn frá Kjartansstöðum er honum að vonum hugleikinn. 
 
 „Ég og pabbi vorum á flakki um Suðurlandið og komum við á Kjartansstöðum með það fyrir augum að kaupa Trostan. Við sáum bróður hans, sammæðra, í hesthúsinu og það kom til tals að taka þá saman í pakka. Sú varð raunin og þannig eignaðist ég Huginn, þá 13 vetra gamlan.
Á þessum árum þóttu 10 vetra hestar of gamlir til að kaupa þó tíðinn sé önnur í dag,  hestar á þessum aldri eiga góða framtíð fyrir sér ef farið er vel með þá. En fólki fannst svolítið skrítið að kaupa svona gamlan hest – héldu að tími Hugins væri liðinn. Ég þjálfaði hann þá um veturinn, fylgdi leiðbeiningum frá Þorvaldi um hvernig hann hefði nálgast hann og bætti mínum hugmyndum inn í þjálfunina.“  Hinn sigursæli Huginn átti þá enn eftir að standa á hátindi ferilsins – því ári síðar prýddu þeir forsíðu Eiðfaxa, þá tvöfaldir heimsmeistarar.
 
Þorvaldur Sveinsson er ræktandi Hugins og þjálfari hans fyrstu 12 árin:
„Ég fór með Ternu undir Náttfara frá Ytra-Dalsgerði, og úr því kom Stígur, fæddur 1980. Mér leist svo vel á hann að ég fór með Ternu aftur undir Náttfara ári síðar.  Sigurbirni Eiríkssyni, eiganda Náttfara, leist svo vel á folaldið Stíg að hann sagði mér að hann gæfi eftir folatollinn, með þeim orðum að hann fengi það til baka með aukinni athygli á Náttfara. Þá kom Huginn undir,“ segir Þorvaldur og er ekki hægt að segja annað en þeir bræður beri föður sínum glæsilegt vitni.
 
„Huginn var okkur hér á Kjartansstöðum, mjög eftirminnilegur, bæði persónuleiki hans og auðvitað hæfileikar. Hann var framúrskarandi hestur.  Huginn vann t.a.m. þrisvar sinnum á Stórmót sunnlenskra hestamannafélaga , fyrst tvisvar í A-flokki og svo B-flokkinn sem og töltkeppni sama móts. Sem útreiðahestur var hann allra hesta skemmtilegastur, verulega rúmur bæði á tölti og brokki, og hafði sem reyndar flest afkvæmi Ternu, þetta mjúka ganglag, hreyfði manninn ekki í hnakknum.“
 
Sigurður er á sama máli og ræktandinn:
„Huginn er ótrúlegur hestur. Hann er gríðarlegur karakter og er alltaf ofarlega í huga mér. Hver reiðtúr var unaðslegur og það var alltaf skemmtilegt að vinna með honum. Hann gat verið stór upp á sig og var mikið viljugur en samt alltaf þjáll. Hann var alltaf tilbúinn að leggja allt undir í það sem ég bað. Ganglagið í honum er stórkostlegt og gangtegundirnar ofsalega jafnar. Frábært og gott skeið. Það var magnað fyrir mig að kynnast svona hesti svona ungur og ferill okkar var mér marþætt reynsla. Saman unnum við Íslandsmeistaratitla, gæðingatitla og auðvita heimsmeistaratitlana.“
Árið 1995 komust Sigurður og Huginn inn í landslið Íslands sem varamenn eftir nokkuð langan aðdraganda. Var það mikill happafengur fyrir liðið og gríðarleg reynsla fyrir hinn unga knapa.
 
Blaðamaður Eiðfaxa tók viðtal við hann fyrir úrslitin í fimmgangi árið 1995:
 
19 ára heimsmeistari í tveimur greinum
Sigurður Matthíasson sem var að taka þátt í sínu öðru heimsmeistaramóti aðeins nítján ára gamall náði þeim frábæra árangri að sigra samanlagt á mótinu. Sigurvegari í samalögðum stigum er oftast álitinn sigurvegari mótsins þó tölthornið eftirsótta sé okkur Íslendingum hugstæðara sennilega vegna þess hversu sjaldan okkur hefur tekist að ná því heim til Ísland. 
Hvernig líður þér nú þegar ljóst er að þú hefur unnið þinn fyrsta heimsmeistaratitil?
„Tilfinningin er mjög góð sérstaklega þar sem ég hef góðan tíma til þes sað undirbúa mig undir úrslitin og get haft hesetinn ferskan og vel undirbúinn. Þetta eru einu úrslitin sem ég þarf að taka þátt í í dag, sunnudag, sem er mikill léttir.“
Truflar það þig ekkert að vita að þú átt eftir að ríða fram fyrir tíu þúsund áhorfendur og taka við aðalverðlaunum mótsins seinna í dag?
„Nei, ég reyni að hugsa sem minnst um það og einbeiti mér að verkefni dagsins og vona að magaverkurinn komi þegar að því kemur.“
Hefur þetta mót verið erfiðara en í Hollandi?
„Já, að mörgu leyti. Það er annað að vera með fimmgangshest en klárhest og baráttan um stigahæsta knapa spilaði þar inn í og var orðin ansi vonlaus, þannig að það var frábær tilfinning þegar ég náði tíma sem dugði í síðasta spretti. Þar hjálpuðu mér mikið félagar mínir í sveitinni með að stilla klárnum rétt upp og mér tókst svo að klára það sem upp á vantaði.
Það verður einnig erfitt að eiga við Karly Zingsheim í úrslitunum á eftir því hann er með mjög góðan hest sem bæði áhorfendur og dómarar hafa fallið fyrir en við gerum okkar besta og sjáum svo til hver staðan verður að leiklslokum. En hann er vissulega verðugur andstæðingur,“ sagði Sigurður. 
Það kom í ljós í úrslitasprettinum að Sigurður lagði þennan andstæðing sinn með glæsibrag með því að sigra í fimmganginum.
 
Eiðfaxi fékk Sigurð til að rifjaði upp þessa eftirminnilegu reynslu: 
 „Við höfðum auðvita heyrt af Karly Zingsheim og hinum ósigrandi gæðingi hans, Feyki frá Rinscheid. Þetta var glæsilegur hestur og Karly hafði þvílíka tækni við skeiðlagningar og niðurhægingar. Ég hafði miklað þá mikið fyrir mér. Ég ákvað að gera atlögu að samanlögðum sigurvegaranum og skráði Huginn því í kappreiðarnar, en þá hafði hann aldrei farið í slíka keppni. Hann fór þá í startbox í fyrsta sinn og það var kannski ekki skrítið en hann stökk upp á kýrstökki við fyrstu þrjár tilraunirnar.“ 
 
Liðsfélögunum leist ekki á að vera að þreyta hestinn fyrir fimmgangsúrslitin en Siggi vildi þó ekki hætti. „Ég var svo fullviss um að við gætum gert þetta. Í fjórða hlaupinu fann ég að hann fór út á réttu stökki. Hann var svo ofsalega teknískur og öruggur niður á skeiðið, og ég leyfði mér því að hleypa honum hratt og við fyrsta nikk, við línuna, fer hann niður og brunar út völlinn á skeiði á fínum tíma. Það dugði og gullið var mitt og það var eins og að fá marfaldan vítamínsskammt  fyrir bardagann í fimmgangsúrslitunum. Það var búið að tala svo mikið um Karly og Feyki, allur meðbyr virtist vera með þeim. En ég gat farið nokkuð kokhraustur inn í úrslitin og Huginn var, eins og alltaf, með öruggið uppmálað. Þetta var bara skemmtun.“
 
Sigurður segir engum blöðum um það að fletta að Huginn væri meðal fremstu gæðinga landsins í dag, væri hann upp á sitt besta. „Hann væri tvímælalaust í fremstu röð, að vinna fimmgangsmót og A-flokk á gæðingamótum.“
 
Eftir sigurinn á Heimsmeistaramótinu föluðu margir Huginn til kaups. „Ég var svo heppinn að geta valið honum heimili, það var mér mjög mikils virði enda var ég ekki tilbúinn til að selja hann hvert sem er. Ég var rosa feginn að August Beyer keypti hann, ég þekkti til hans og vissi að hann færi á frábært heimili. Ég gæti ekki hugsað mér betri stað fyrir hann. Mér skilst að ung stúlka hafi tekið hann að sér og dekrað mikið við hann. Hann hefur því alltaf fengið gott atlæti og verið í dekurpakkanum. Hann á það sannarlega skilið,“ segir Siggi spakur.
 
Síðustu ár hefur Huginn kætt og kennt börnum í reiðskóla Margot  Großfeld og þykir börnunum eflaust mikið til þess koma að læra af sjálfum heimsmeistaranum. „Huginn er einn besti hestur sem við höfum nokkurn tímann kynnst, hann er bæði hæfileikaríkur og mikill karakter. Hann er í raun fjórgangshestur með gríðargott skeið. Einfaldlega alvöru gæðingur,“ segir Susanne George, einn eiganda Hugins sem sendi okkur jafnframt þessar myndir af Hugin sem teknar voru í síðustu viku.
 
Susanne og August færa félögum Hugins reglulega fréttir en Sigurður hefur ekki heimsótt hann lengi. Yfir skemmtilegum sögum af glæstum ferli fékk hann þá bráðsniðugu hugmynd að höfðinginn yrði tilvalinn heiðursgestur í Berlín árið 2013! 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link