Liðakynning Vesturlandsdeildarinnar – Lið Söðulsholt/Hergill
Fjórða liðið sem við kynnum til leiks er lið Söðulsholt/ Hergill
Liðsmenn eru:

Lárus Ástmar Hannesson, Stykkishólmi, liðstjóri. Grunnskólakennari og rekur Hestamiðstöð Snæfellsnes Grundarfirði.

Friðdóra Friðriksdóttir, Hafnarfirði. Þjálfari og reiðkennari frá Hólum og rekur Hestaval í Hafnarfirði ásamt manni sínum Sindra Sigurðssyni.

Sindri Sigurðsson, Hafnarfirði. Þjálfari og reiðkennari frá Hólum og rekur Hestaval í Hafnarfirði ásamt konu sinni Friðdóru Friðriksdóttur.

Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Grundarfirði. Stundar nám i Fjölbrautaskóla Snæfellinga og vinnur við þjálfun hrossa samhliða því.

Siguroddur Pétursson Hrísdal. Siguroddur stundar tamningar og þjálfun í Hrísdal á Snæfellsnesi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts