Framlengdur skráningarfrestur á gæðingalistar mótið í Herði
Ákveðið var að framlengja skráningarfrest á gæðingalistar mótinu sem haldið verður í Herði næstu helgi.
„Fyrsta mótið í heiminum eftir að greinin varð lögleg, frábært tækifæri til að æfa sig og gæðinginn fyrir komandi mót. Hámarkskráningarfjöldi skráninga er í hvern flokk og því um að gera að skrá sig sem allra fyrst. Skráningu lýkur Mánudaginn 13.febrúar,“ segir í tilkynningu frá mótsnefndinni.
Keppt verður á:
1.stigi fyrir minna vana (Velja A flokk í sportfeng)
2.stigi fyrir meira vana (Velja B flokk í sportfeng)
3.stigi opnum flokk (Velja C flokk í sportfeng)
Tímamörk fyrir hverja sýningu er 5 mínútur. Tími og tónlist byrja þegar knapi hneigir sig eða í síðasta lagi þrjátíu sekúndum eftir að knapi kemur inn á völlinn.
Æfingalista og tónlistarvali skal skila á netfangið [email protected] í síðasta lagi að miðnætti miðvikudaginn 15.febrúar
Allar upplýsingar um reglur Gæðingalist er hægt að nálgast HÉR.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH