Ástund 35 ára

  • 17. nóvember 2011
  • Fréttir

Mynd/astund.is

Ástund 35 ára

Ástund, sérvöruverslun hestamannsins, fagnar 35 ára afmæli þann 19. nóvember. Ástund er til húsa í Austurveri við Háaleitisbraut 68 og hefur verið þar frá stofnun. Ástund er enn í eigu stofnenda þess og eru þeir stoltir af því að hafa rekið verslunina á sömu kennitölu í gegnum þykkt og þunnt. En lykillinn að velgengni fyrirtækisins er gott starfsfólk og stöðugleiki í starfsmannahaldi.  Ástund hefur verið leiðandi í hönnun á reiðtygjum og reiðfatnaði um árabil.  Ávallt hefur verið lögð mikil áhersla á faglega og persónulega þjónustu ásamt því að bjóða upp á fjölbreytt og vandað vöruúrval á viðráðanlegu verði.

 
Í tilefni þessara tímamóta verður margt um dýrðir. Nýr hnakkur úr smiðju Ástund lítur dagsins ljós:  Ástund „Epona“
 
Kynnig á nýjum jafnvægispíski frá hinum virta framleiðanda Fleck og nýja gerð öryggishjálms!
 
25 – 35% afsláttur af öllum vörum í verslun okkar, helgina 18. – 19. – 20. nóvember!
 
Allir viðskiptavinir sem leggja leið sína í Ástund að versla um afmælishelgina komast í happdrættispott og vinningarnir eru ekki af verri endanum. 
 
1. Vinningur 75.000.- kr gjafakort
2. Vinningur 50.000.- kr gjafakort
3. Vinningur 25.000.- kr gjafakort
 
Helgi Björns mun árita diska og skemmta viðskiptavinum á milli 17 -18 á föstudag og laugardag.
 
Opnunartími:
 
Föstudagur  10 -18
Laugardagur  10 – 18
Sunnudagur  12 – 17

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link