Íhuga hækkanir á sýningargjöldum
Kynbótasýning á Landsmóti Mynd: ÓÖJ
Í samtali við Eiðfaxa segir Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri RML, að búið sé að samþykkja umsókn um hækkun af stjórn fyrirtækisins og beiðni um heimild til hækkunar hafi verið send matvælaráðuneytinu.
Ástæður fyrir hækkuninni eru fyrst og fremst til að koma til móts við launahækkanir og aukins kostnaðar vegna verðbólgu. Einnig hefur RML verið að greiða 5 – 9 milljónir með sýningunum á hverju ári og þarf RML að fara minnka þann halla.
“Reynt hefur verið eftir fremsta megni að halda hækkunum á sýningargjöldum í lágmarki en við þurfum að fylgja þróun launa og verðbólgu. Enda er markmið RML að sýningargjöldin standi að mestu undir kostnaði við sýningarhaldið en þó hefur RML greitt verulegar fjárhæðir með þeim.”
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH