Stemning á fyrsta móti Léttis
Fyrsta mót ársins hjá hestamannafélaginu Létti á Akureyri fór fram í Top Reiter höllinni sl. föstudag.
Skemmtileg stemning myndaðist á Nýárstölti félagsins þar sem keppendur komu fram með glæsilegan hestakost. Keppt var í tveimur styrkleikaflokkum og sigraði Þóra Höskuldsdóttir styrkleikaflokk B á Steinari frá Sámsstöðum á meðan Þorbjörn Hreinn Matthíasson sigraði styrkleikaflokk A á fallegri hryssu, Heklu frá Hólshúsum. Þorbjörn Hreinn er skráður til leiks í KB-mótaröðina og verður spennandi að fylgjast með honum þar. Annar varð Baldvin Ari Guðlaugsson á Senjor frá Syðri Ey en Baldvin var á nýliðnu ári kjörin knapi ársins hjá Létti og var hann heiðraður sérstaklega á mótinu.
Úrslit Nýárstölts Léttis
B styrkleikaflokkur
- Þóra Höskuldsdóttir – Steinar fra Sámsstöðum 6,28
- Katrín Birna Barkardóttir – Vaka frá Hólum 6,17
- Guðmundur Hjálmarsson Einir frá Ytri Bægisá 6,00
- Ágústa Baldvinsdóttir Orka frá Efri Rauðalæk 5,61
- Björn Guðjónsson Keðja frá Húsavík 4,94
A styrkleikaflokkur
- Þorbjörn Hr. Matthíasson – Hekla frá Hólshúsum 6,94
- Baldvin Ari Guðlaugsson – Senjor frá Syðri Ey 6,72
- Guðmundur Tryggvason – Rósalín frá Efri Rauðalæk 6,61
- Viðar Bragason – Binný frá Björgum 6,39
- Úlfhildur Sigurðardóttir – Sveifla frá Hóli 6,39
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH