Lýsing á litunum og litmynstrunum í íslenska hrossastofninum

  • 24. febrúar 2023
  • Fréttir
Áhugaverður fyrirlestur á vegum hrossaræktarsamtaka Suðurlands

Hrossaræktarsamtök Suðurlands auglýsa „Lýsing á litunum og litmynstrum í íslenska hrossastofninum“. Myndasýningu og fyrirlestur í Hliðskjálf, Selfossi, laugardaginn 26. febrúar kl. 14:00 – 17:00.

Páll Imsland er með fyrirlestur um liti og litmynstur í íslenska hrossastofninum. Öðrum þræði ítarlegur yfirlitsfyrirlestur um það sem flestir vita og hinum þræði kynning á því sem fæstir eða nær engir vita. Byggist fyrst og fremst á sýningu aragrúa ljósmynda, sem settar eru í samhengi með einföldum texta og stuttum útskýringum. Engar erfðaformúlur eða annað tyrfið efni.

Hentar öllum, hversu mikið eða lítið sem þeir kunna um hrossaliti. Hentar bæði til upprifjunar og lærdóms á nýjungum.

Efnið er þrískipt:

  1. Litirnir í íslenska hrossastofninum
  2. Hvít litmynstur af ýmsum gerðum og samspil þeirra við liti
  3. Blöndun lita og litamynstra og ýmislegt annað sem snertir litamál.

Kaffi og umræður í pásum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link