Kvista-Ketill kemur fram

  • 26. apríl 2012
  • Fréttir
Kvista-Ketill kemur fram

Einn af vonarstjörnum íþróttakeppninnar kemur fram á Stóðhestadegi Eiðfaxa.

Ketill er fallegur fótaburðarklár sem vakti nokkra athygli í fjórgangskeppni Meistaradeildarinnar þegar Hinrik Bragason kom fram með hann í fyrstu íþróttakeppni sína. Nú hefur Hulda Gústafsdóttir tekið við Katli og mun sýna hann á laugardag.

Ketill er undan Nagla frá Þúfu og Kötlu frá Skíðbakka II sem er undan heimsmeistaranum fyrrverandi í fimmgangi Hlyni frá Kjarnholtum I.

Ketill er með 8,22 í aðaleinkunn og 8,22 fyrir sköpulag og 8,21 fyrir kosti en hann hefur verið sýndur þrisvar fyrir kynbótadómi. Hæst hefur hann hlotið 9,5 fyrir hægt tölt, einkunnina 9 fyrir tölt og brokk, hægt stökk, vilja og geðslag og fegurð í reið.

Upplýsingar um Kvist veitir Kristjón L. Kristjánsson í síma 894-1298 eða í gegnum netfangið [email protected].

Stóðhestadagur Eiðfaxa fer fram á Brávöllum á Selfossi og hefst hátíðin kl. 14. 

Auk kynninga og sýninga á ungum og upprennandi og öðrum þekktari stóðhestum verður boðið upp á kennslusýningu Þorvaldar Árna Þorvaldssonar í reiðhöll Sleipnis.

Aðgangur er ókeypis og allir velkominn!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link