Eiríkur nýr formaður Geysis

  • 2. mars 2023
  • Fréttir

Stjórn hestamannafélagsins Geysi. Dóróthea Oddsdóttir, Marta Gunnarsdóttir, Guðmundur Björgvinsson, Eiríkur Vilhelm Sigurðsson, Lárus Jóhann Guðmundsson og Sóley Margeirsdóttir. Á myndina vantar Jónínu Lilju Pálmadóttir.

Fjölmennasti aðalfundur félagsins frá upphafi

Hestamannafélagið Geysir hélt aðalfund sinn í gær. Buðu þau, Eiríkur Vilhelm Sigurðsson og Sóley Margeirsdóttir, fram til formanns en Ólafur Þórisson, fyrrum formaður Geysis, gaf ekki aftur kost á sér eftir formannssetu síðustu 12 ár. Mikill fomannsslagur var fyrir fundinn og var félagsmönnum smalað á fundinn. Aðalfundurinn var fjölmennasti aðalfundur frá stofnun félagsins árið 1949 en 129 manns mættu.

Eiríkur var kosinn formaður með um 60% atkvæða.

„Ég vil þakka öllum þeim Geysisfélögum sem komu á fundinn og ég er gríðarlega stoltur af því að hafa verið kosinn formaður með 60% atkvæða. Framtíð Geysis er björt og hlakka ég til að starfa fyrir félagið – Áfram Geysir!“ segir Eiríkur í færslu sem hann birtir á facebook síðu sinni.

Í Hestamannafélaginu Geysi eru 715 félagar og gerir það félagið að fjórða stærsta hestamannafélagi í landinu á eftir Spretti, Fáki og Sörla. Félagið er jafnframt fjölmennasta íþróttafélag Rangárvallasýslu.

Ný stjórn Geysis er Lárus Jóhann Guðmundsson (vara-formaður), Marta Gunnarsdóttir, Dóróthea Oddsdóttir og Guðmundur Friðrik Björgvinsson. Í varastjórn eru Sóley Margeirsdóttir og Jónína Lilja Pálmadóttir.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar