Sara vann fimmganginn
Þá er keppni í fimmgangi lokið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum. Það kom margt á óvart í kvöld og þá sérstaklega að Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II náðu ekki inn í úrslit eftir misheppnaðan skeiðsprett, en þau voru sigurvegararnir frá því í fyrra. Hörkuspennandi keppni og hart barist í úrslitum.
Eftir tvö fyrstu atriðin (tölt og brokk) voru þeir efstir Viðar Ingólfsson og Eldur frá Mið-Fossum en eftir fetið tóku þær Glódís Rún Sigurðardóttir og Salka frá Efri-Brú af þeim efsta sætið. Þær voru efstar fyrir skeiðið sem þær leistu vel en það dugði ekki í þetta skiptið. Sara Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhóli áttu frábæra sýningu á skeiði og hrifsuð af þeim gullið rétt í lokinn. Sara og Flóki hlutu 9,5 frá einum dómara fyrir skeið og 9,0 frá tveimur. Frábær fimmgangur og virkilega spennandi úrslit.
Lið Auðsholtshjáleigu/HORSEEXPORT var stigahæst í fimmgangum en Sara keppir fyrir liðið ásamt þeim Ásmundi Erni (4. sæti) og Þórdís Erlu Gunnarsdóttur (17. sæti).
Auðsholtshjáleiga/HORSEEXPORT saxaði á forskot Ganghesta/Margrétarhofs í liðakeppninn sem leiðir enn með 149,5 stig en einu og hálfu stigi neðar er lið Auðsholtshjáleigu/HORSEEXPORT með 148 stig. Þriðja sem stendur er lið Hestvit/Árbakka með 117 stig.
Í einstaklingskeppninni er Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir efst með 24 stig en hún vann fyrstu tvær greinarnar. Sara Sigurbjörnsdóttir er komin í annað sæti með 20 stig og þriðja er Glódís Rún Sigurðardóttir með 15 stig.
Næst er gæðingalist 23. mars
Niðurstöður – A úrslit – Fimmgangur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Sara Sigurbjörnsdóttir Flóki frá Oddhóli 7,79
2 Glódís Rún Sigurðardóttir Salka frá Efri-Brú 7,64
3 Þorgeir Ólafsson Goðasteinn frá Haukagili Hvítársíðu 7,36
4 Ásmundur Ernir Snorrason Ás frá Strandarhöfði 7,26
5 Teitur Árnason Nóta frá Flugumýri II 7,19
6 Viðar Ingólfsson Eldur frá Mið-Fossum 7,00
Niðurstöður – Forkeppni – Fimmgangur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Sara Sigurbjörnsdóttir Flóki frá Oddhóli 7,27
2 Ásmundur Ernir Snorrason Ás frá Strandarhöfði 7,17
3 Viðar Ingólfsson Eldur frá Mið-Fossum 7,13
4-6 Þorgeir Ólafsson Goðasteinn frá Haukagili Hvítársíðu 7,07
4-6 Teitur Árnason Nóta frá Flugumýri II 7,07
4-6 Glódís Rún Sigurðardóttir Salka frá Efri-Brú 7,07
7 Bjarni Jónasson Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli 7,03
8 Helga Una Björnsdóttir Kría frá Hvammi 6,90
9-10 Pierre Sandsten Hoyos Engill frá Kambi 6,73
9-10 Jakob Svavar Sigurðsson Nökkvi frá Hrísakoti 6,73
11 Hafþór Hreiðar Birgisson Þór frá Meðalfelli 6,70
12 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Sölvi frá Stuðlum 6,63
13-14 Ragnhildur Haraldsdóttir Ísdís frá Árdal 6,57
13-14 Ragnar Stefánsson Mánadís frá Litla-Dal 6,57
15-16 Gústaf Ásgeir Hinriksson Silfursteinn frá Horni I 6,53
15-16 Ólafur Ásgeirsson Hekla frá Einhamri 2 6,53
17 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Viljar frá Auðsholtshjáleigu 6,43
18 Kristófer Darri Sigurðsson Fluga frá Lækjamóti 6,20
19 Árni Björn Pálsson Katla frá Hemlu II 6,17
20 Benjamín Sandur Ingólfsson Smyrill frá V-Stokkseyrarseli 6,03
21 Flosi Ólafsson Steinar frá Stíghúsi 5,97
22 Jóhann Kristinn Ragnarsson Vænting frá Vöðlum 5,83
23 Hans Þór Hilmarsson Ölur frá Reykjavöllum 5,77
24 Jóhanna Margrét Snorradóttir Rosi frá Berglandi I 5,70
25 Konráð Valur Sveinsson Seiður frá Hólum 5,23
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH