Ásmundur Ernir og Grafík efst
Hér koma niðurstöður úr fimmgangi ungmenna en efstur er Ásmundur Ernir Snorrason á Grafík frá Búlandi með einkunnina 6,83. Á eftir honum eru Íslandsmeistararnir Arnar Bjarki Sigurðsson og Arnar frá Blesastöðum með einkunnina 6,80 og þriðji er Teitur Árnason á Gamm frá Skíðbakka með einkunnina 6,80.
Ásmundur Ernir keppti á Grafík á Íslandsmóti barna, unglinga og ungmenna og enduðu þau fjórðu eftir forkeppni í fimmgangi ungmenna. Ásmundur var með tvo hesta í úrslitum, Grafík og Hvessi frá Ásbrú, og ákvað að taka Hvessi í staðin fyrir Grafík. Hvessir og Ásmundur enduðu í 6. sæti í a úrslitunum. Spennandi er að sjá hvað Ásmundur og Grafík gera í úrslitunum en þar verður eflaust hart barist.
Niðurstöður úr forkeppni í fimmgangi ungmenna:
Sæti Keppandi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH