Stórsýning sunnlenskra hestamanna
Stórsýning sunnlenskra hestamanna verður haldin í Rangárhöllinni á Hellu á skírdagskvöld, hinn 2. apríl næstkomandi að fram kemur í tilkynningu.
„Það er Rangárhöllin sem gengst fyrir sýningunni í samstarfi við sunnlenska hestamenn og hrossaræktendur. Dagskrá sýningarinnar verður kynnt á næstu dögum, en stefnt er að því að þarna komi fram úrval hrossa af Suðurlandi, stóðhestar, gæðingar, ræktunarhópar og afkvæmahópar.
Sérstök áhersla verður lögð á að kynna unga stóðhesta, á fjórða og fimmta vetur, og einnig munu koma fram eldri og þekktari hestar sem þegar hafa sannað gildi sitt sem afkvæmahestar. Nokkrir þekktir stóðhestar verða einnig hafðir til sýnis í hléi þar sem gestir munu geta virt þá fyrir sér í návígi.
Á næstu dögum verður haft samband við fjölda hrossaræktenda og eigenda hesta vegna sýningarinnar, en áhugasamir eru einnig hvattir til að hafa samband við Kristinn Guðnason í Árbæjarhjáleigu til að fá frekari upplýsingar. Engin skráningargjöld verða tekin vegna hesta sem taka þátt og verði aðgöngumiða verður mjög stillt í hóf.
Aðstandendur sýningarinnar hvetja hestamenn til að taka kvöldið frá, þetta er á skírdagskvöld í miðri páskahelginni og örugglega verður mikil umferð hestamanna um héraðið þessa daga og margir byrjaðir að huga að stóðhestanotkun fyrir vorið og sumarið. Nánari fréttir munu berast næstu daga,“ segir í tilkynningu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH