Bjarni Jónasson sigurvegari KS-deildar
Bjarni Jónasson er sigurvegari KS-deildarinnar, Meistaradeildar Norðurlands, árið 2012. Hann knúði fram sigur í æsispennandi lokakeppni þegar hann flaug gegnum höllina á flugskeiði á Hrapp frá Sauðárkróki á 5,04 sekúndum. Í reynd var það þriðji besti skeiðsprettur kvöldsins, en Bjarni hefur á öllum mótum lokið keppni meðal efstu knapa tryggði góður árangur honum 34 stig í heildarstigakeppni deildarinnar. Annar var Sölvi Sigurðarson með 32 stig og Mette Mannseth í því þriðja með 29,5 stig.
Árangur Bjarna:
-
2. sæti í tölti á Roða frá Garði
-
2. sæti í fimmgangi á Djásn frá Hnjúki
-
3. sæti í skeiði á Hrapp frá Sauðárkróki
-
4. sæti í fjórgangi á Roða frá Garði
-
5. sæti í slaktaumatölti á Svala frá Garði
Stigasöfnun
Knapar Heild.stig
-
Bjarni Jónasson 34
-
Sölvi Sigurðarson 32
-
Mette Mannseth 29,5
-
Ísólfur Líndal 25
-
Þórarinn Eymundsson 20,5
-
Ólafur Magnússon 18
-
Tryggvi Björnsson 17
-
Baldvin Ari Guðlaugsson 17
-
Þorbjörn H Matthíasson 11
-
Fanney D Indriðadóttir 9,5
-
Elvar Einarsson 6,5
-
Viðar Bragason 4
Tryggvi Björnsson sigraði keppni í slaktaumatölti nokkuð örugglega á Gulltoppi frá Þjóðólfshaga. Voru þeir langefstir eftir forkeppni, og héldu öruggri forystu til loka, hlutu 7,58. Mette Mannseth á Stjörnustæl frá Dalvík og Þórarinn Eymundsson á Takti frá Varmalæk gerðu heiðarlega atlögu að þeim í úrslitum, hlutu bæði 7,38 í úrslitum en Mette fékk silfur eftir hlutkesti.
Slaktauma tölt
A-úrslit
1 Tryggvi Björnsson 7,58
2 Mette Mannseth 7,38
3 Þórarinn Eymundsson 7,38
4 Sölvi Sigurðarson 7,00
5 Bjarni Jónasson 6,83
B-úrslit
5 Sölvi Sigurðarson 7,00
6 Ísólfur L Þórisson 6,96
7 Elvar Einarsson 6,92
8 Fanney Dögg Indriðad 6,54
9 Sveinn B Friðriksson 6,46
Forkeppni
-
Tryggvi Björnsson Gulltoppur frá Þjóðólfshaga 7,20
-
Mette Mannseth Stjörnustæll frá Dalvík 6,63
-
Þórarinn Eymundsson Taktur frá Varmalæk 6,57
-
Bjarni Jónasson Svala frá Garði 6,53
-
Sölvi Sigurðarson Glaður frá Grund 6,43
-
Ísólfur L Þórisson Freyðir frá Leysingjastöðum 6,33
-
Elvar Einarsson Lárus frá Syðra Skörðugili 6,23
-
Fanney Dögg Indriðad Grettir frá Grafarkoti 6,20
-
Sveinn B Friðriksson Synd frá Varmalæk 6,13
-
Viðar Bragason Björg frá Björgum 6,07
-
Þorsteinn Björnsson Kylja frá Hólum 6,07
-
Hörður Óli Sæmundarson Lotus frá Vatnsleysu 5,87
-
Baldvin Ari Guðlaugsson Senjor frá Syðri Ey 5,87
-
Ólafur Magnússon Gáski frá Sveinsstöðum 5,83
-
Elvar Logi Friðriksson Brúney frá Grafarkoti 5,73
-
Þorbjörn H Matthíasson Hrollur frá Grímsey 5,30
-
Erlingur Ingvarsson Þerna frá Hlíðarenda 5,23
-
Magnús B Magnússon Heiðar frá Skefilsstöðum 3,60
Lokagrein mótaraðarinnar var hörkuspennandi skeiðkeppni, þar sem vekringar voru teknir til kostanna gegnum Svaðastaðahöll. Mette Mannseth fór þar mikinn á Þúsöld frá Hólum, besti tími þeirra var 4,96 sekúndur, og varð ögn fljótari en Þórarinn Eymundsson og Bragur frá Bjarnastöðum sem skeiðuðu í gegn á 4,98 sekúndum.
Skeið
-
Mette Mannseth Þúsöld frá Hólum 4,96
-
Þórarinn Eymundsson Bragur frá Bjarnastöðum 4,98
-
Bjarni Jónasson Hrappur frá Sauðárkróki 5,04
-
Þorbjörn H Matthíasson Mötull frá Torfunesi 5,08
-
Sölvi Sigurðarson Steinn frá Bakkakoti 5,09
-
Ísólfur L Þórisson Flugar frá Barkarstöðum 5,12
-
Erlingur Ingvarsson Stígur frá Efri Þverá 5,22
-
Baldvin Ari Guðlaugsson Jökull frá Efri Rauðalæk 5,24
-
Magnús B Magnússon Fjölnir frá Sjávarborg 5,27
-
Tryggvi Björnsson Blær frá Miðsitju 5,31
-
Þorsteinn Björnsson Melkorka frá Lækjamóti 5,31
-
Elvar Einarsson Segull frá Halldórsstöðum 5,4
-
Elvar Logi Friðriksson Hvirfill frá Bessastöðum 5,42
-
Sveinn B Friðriksson Glaumur frá Varmalæk 5,45
-
Ólafur Magnússon Steina frá Nykhóli 5,71
-
Viðar Bragason Sísí frá Björgum 5,79
-
Fanney Dögg Indriðad Harpa frá Margrétarhofi 6,73
-
Hörður Óli Sæmundarson Hreinn frá Vatnsleysu 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH