Sigurbjörn skákaði þeim öllum-
Sigurbjörn Bárðarson var sigurvegari kvöldsins í fimmgangskeppni Meistaradeildar VÍS. Eftir forkeppnina var Sigurbjörn sjötti á Stakki frá Halldórsstöðum með einkunnina 6.53 og var efstur inn í B-úrslit. Þau sigraði hann örugglega og mætti með eldsprækan Stakk til leiks í A-úrslitunum. Stakkur batnaði við hvern riðinn hring, tölt og brokk mjög gott og skeiðið frábært. Þeir uppskáru verðskuldaðan sigur að lokum.
Annar varð Hinrik Bragason á Glym frá Flekkudal. Hann var efstur eftir forkeppnina með 6.90. Flinkur gæðingur Keilis- og Pyttlusonurinn Glymur, enda með 8.79 fyrir hæfileika í kynbótadómi.
Þriðji varð hinn ungi og snjalli knapi Teitur Árnason. Hann var með Þul frá Hólum, sem er undan Kormáki frá Flugumýri II og Þrennu frá Hólum. Þeir voru í 2.sæti eftir forkeppnina með 6.77.
Hér fyrir neðan eru úrslit kvöldsins:
A-úrslit:
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Sigurbjörn Bárðarson / Stakkur frá Halldórsstöðum 7.24
2 Hinrik Bragason / Glymur frá Flekkudal 7.14
3 Teitur Árnason / Þulur frá Hólum 6.98
4 Lena Zielinski / Andrá frá Dalbæ 6.74
5 Eyjólfur Þorsteinsson / Ögri frá Baldurshaga 6.74
6 Hulda Gústafsdóttir / Sámur frá Litlu-Brekku 6.52
B-úrslit:
Sæti Keppandi
1 Sigurbjörn Bárðarson / Stakkur frá Halldórsstöðum 7
2 Þórdís Gunnarsdóttir / Hreggviður frá Auðsholtshjáleigu 6.93
3 Halldór Guðjónsson / Greifi frá Holtsmúla 1 6.57
4 Guðmundur Björgvinsson / Þytur frá Neðra-Seli 6.45
5 Sigurður Vignir Matthíasson / Birtingur frá Selá 1.67
Niðurstöður úr forkeppni:
Sæti Keppandi
1 Hinrik Bragason / Glymur frá Flekkudal 6.9
2 Teitur Árnason / Þulur frá Hólum 6.77
3 Eyjólfur Þorsteinsson / Ögri frá Baldurshaga 6.7
4 Lena Zielinski / Andrá frá Dalbæ 6.6
5 Hulda Gústafsdóttir / Sámur frá Litlu-Brekku 6.57
6 Sigurbjörn Bárðarson / Stakkur frá Halldórsstöðum 6.53
7 Guðmundur Björgvinsson / Þytur frá Neðra-Seli 6.5
8 Þórdís Gunnarsdóttir / Hreggviður frá Auðsholtshjáleigu 6.5
9 Sigurður Vignir Matthíasson / Birtingur frá Selá 6.5
10 Halldór Guðjónsson / Greifi frá Holtsmúla 1 6.47
11 Viðar Ingólfsson / Segull frá Mið-Fossum 2 6.4
12 Jakob Svavar Sigurðsson / Vörður frá Árbæ 6.37
13 Sigurður Sigurðarson / Haukur frá Ytra-Skörðugili II 6.37
14 Bylgja Gauksdóttir / Leiftur frá Búðardal 6.3
15 Elvar Þormarsson / Skuggi frá Strandarhjáleigu 6.27
16 Þorvaldur Árni Þorvaldsson / Freyþór frá Hvoli 6.23
17 Valdimar Bergstað / Dröfn frá Akurgerði 6.07
18 Ævar Örn Guðjónsson / Pandóra frá Hemlu 5.9
19 Ólafur Ásgeirsson / Dama frá Flugumýri II 5.83
20 Artemisia Bertus / Hugsun frá Vatnsenda 5.67
21 Ragnar Tómasson / Þór frá Skollagróf 5.5
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH