Uppskeruhátíð og sviðaveisla
Fimmtudaginn 5. febrúar kl 20:00 ætlar Hrossaræktarfélag Biskupstungna að halda Sviðaveislu og Uppskeruhátið á Friðheimum, Reykholti þar sem þeir félagar sem lengst náðu í hrossarækt á árinu 2014 verða verðlaunaðir, gestur kvöldsins er Helgi Eggertsson hrossaræktandi í Kjarri.
Dagskrá: kl 20.00 Uppskeruhátíð og verðlaunaafhendingar
Veitt verða verðlaun fyrir hæst dæmdu stóðhesta og hryssur ræktaðar af félagsmönnum, afreksverðlaun félagsins og hrossaræktarbú ársins er síðan verðlaunað.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH