Íslendingar í fjórða sæti

  • 22. júlí 2015
  • Fréttir
Stuttmyndakeppni á vegum FEIF.

Síðusta mánuð bauð FEIF upp á stuttmyndakeppni þar sem ungt fólk sendi inn til þeirra um 5 mínútna langt myndband sem á að fjalla um hamingju og íslenska hestinn. Harðarkrakkarnir Súsanna Katarína Sand Guðmundsdóttir, Sandra Lynch, Anton Hugi Kjartansson, Lara Alexie Ragnarsdóttir og Hrafndís Katla Elíasdóttir sendu inn myndband og höfnuðu þau í fjórða sæti.

Allar stuttmyndirnar voru dæmdar af alþjóðlegri dómnefnd sem sérhæfir sig í kvikmyndum ásamt því að vera hestafólk. Það voru krakkar frá Þýskalandi sem sigruðu keppnina, Anna Möller, Anna Kettler, Leonie Ehrle, Sarah Mohl, Louisa Letzel og Vanessa Häußermann.

Hér má sjá stuttmyndina sem sigraði og stuttmynd íslensku krakkana úr Herði:

 

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link