Frábær skírdagur framundan.
Klifsholtsleið er nýja leiðin merkt með grænu á myndinni, sem var verið að gera frá Sléttuhlíð í Smyrlabúið og bráðabirgða leiðin er um Urriðadali, á Tjarnarholtsleið
„Það er ljómandi fín spá fyrir skírdaginn og við hlökkum til að taka á móti met fjölda hestamanna af höfuðborgarsvæðinu. Við vonumst til að sem flestir prófi nýja og frábæra reiðleið í Hafnarfjörðinn, svokallaða Klifsholtsleið, sem Hafnafjarðarbær og Sörli voru að ljúka við. Svo náttúrulega verða heimabakaðar kökur og allt það“. Sagði Atli Már formaður Sörla í stuttu spjalli við Eiðfaxa.
Löng hefð er fyrir því að hestamann á höfuðborgarsvæðinu fjölmenni ríðandi í Hafnarfjörð á skírdag. Margir söknuðu þessa viðburðar í Covid faraldrinum, en nú eru Sörlamenn búnir að blása aftur til fagnaðar. Að sögn Diddu, framkvæmdastjóra Sörla er allt klárt fyrir daginn. Nýja reiðleiðin um Klifsholt var völtuð í gær og bíður bara eftir gestum, sagði Didda, en bætti svo við, en komdu bara og prófaðu, ég má ekkert vera að þessu masi.
Viðburðir sem þessir eru oft háðir veðri. Það má með sanni segja að veðurspáin sé hagstæð fyrir skírdag, hæglætisveður. Það viðrar vel til heimsókna í fjörðinn.

Bráðabirgða reiðleiðinni um Urriðadali á Tjarnarholtsleið til baka ofan við golfvöll Oddfello, en sú leið var einnig mulin og gerð klár af Spretturum.

Klifsholtsleið er nýja leiðin merkt með grænu á myndinni, sem var verið að gera frá Sléttuhlíð í Smyrlabúið og bráðabirgða leiðin er um Urriðadali, á Tjarnarholtsleið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH