Álfaklettur mætir á Stórsýningu Sunnlenskra hestamanna

  • 5. apríl 2023
  • Fréttir

Olil og Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum Mynd: Kolla Gr.

Stórsýning Sunnlenskra hestamanna á Hellu á Skírdag

Miðasala gengur vel og hvetjum við áhugasama til þess að tryggja sér miða á www.tix.is/storsyning

Miðaverði er stillt í hóf og er það 3.900 kr.

Húsið er opnað kl. 19:00 og sýningin hefst kl. 20:00

Eins og fram kemur í fyrirsögninni fréttarinnar þá kemur glæsihesturinn Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum fram á sýningunni og hlökkum við gríðarlega til að sjá hann dansa um gólfið!

Stórsýning Sunnlenskra hestamanna fer að venju fram á Skírdag og í Rangárhöllinni á Hellu. Sýningin hefur verið að teikna sig upp síðustu vikur og verður sýningin í ár skreytt gríðarlega fjölbreyttum atriðum. Sýningin mun einkennast af léttleika og skemmtun og verður boðið uppá eitthvað fyrir alla hestaáhugamenn – unga sem aldna.

Við fáum atriði fra hestabraut FSU, íþróttafólk Jökuls mætir á svæðið, úrval klárhrossa og aðhliðahrossa, hestvagn Bettínu mun þeysa um gólfið, landsliðsknapar úr Sleipni og margt fleira!

Þetta verður sýningin sem enginn má láta framhjá sér fara!

Nánari upplýsingar í viðburðinum á Facebook: www.facebook.com/events/6104364166269034

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link