Meistaradeildin að hefjast

  • 24. janúar 2013
  • Fréttir
Meistaradeildin að hefjast

„Forsala aðgöngumiða fyrir fyrsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum 2013 er hafin. Mótið hefst klukkan 18:30 á fimmtudag 31. janúar með veglegri opnunarhátíð.  Fyrsta mót ársins er fjórgangur. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu hestum landsins verði skráðir til leiks.

Knapar mæta á fyrstu æfingar í Ölfushöllinni um n.k. helgi og þá má 
búast við miklum tilþrifum.  Gera má ráð fyrir harðri baráttu allt frá 
fyrstu keppni.
 
Í tilefni 10 ára afmælis Meistaradeildar í hestaíþróttum verður blásið 
til veglegrar opnunarhátíðar þar sem liðin og styrktaraðilar verða 
kynnt, Guðni Ágústsson ávarpar gesti, Brokkkórinn mætir og svo kemur 
Ingó veðurguð og tekur nokkur lög.  Lofar góðu um frábært kvöld og 
spennandi keppni.
 
Aðgangseyrir á mótið er krónur 1.500 og krónur 500 fyrir börn yngri en 
12 ára. Miðarnir eru til sölu í Líflandi, Top Reiter og Baldvini og 
Þorvaldi, Selfossi. Á sömu stöðum er einnig hægt að kaupa ársmiða á 
deildina en þeir kosta krónur 5.000,“ segir í tilkynningu frá stjórn Meistaradeildar
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link