Úrslitin ráðast á morgun
Lokamót Meistaradeildar verður haldið föstudaginn 30. mars í Ölfushöllinni. Húsið opnar kl. 17 og geta gestir fylgst með knöpum og hestum undirbúa sig fyrir átökin. Gríðarleg spenna er í deildinni og geta fjórir knapar tryggt sér sigur í einstaklingskeppninni. Áhorfendur geta kosið knapa sem hefur sýnt fagmannlega reiðmennsku allt mótið og gildir þeirra atkvæði 50% á móti dómurum og stjórn.
Kveikt verður upp í grillinu kl. 17-19 og eftir mót og geta gestir snætt fyrir 1.500 krónur, trúbador mun halda uppi stemmningu frá kl. 23-2.
Þá verða happadrættismiðar í boði á 1.000 krónur þar sem dregið verður úr folatollum undir þá Konsert frá Korpu, Máttur frá Leirubakka, Tónn frá Melkoti, Leiknir fá Vakurstöðum, Leoarnd frá Vakurstöðum bróðir Leiknis Aron sonur og Stormur frá Leirulæk.
Staðan í einstaklingskeppni: Staðan á liðakeppninni
Artemisia Bertus lið Hrímnis 41 stig 1. sæti Top Reiter / Ármót 280,5 stig
Jakob Svavar Sigurðsson lið Top Reiter / Ármót 41 stig 2 .sæti Lýsi 262 stig
Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning 34 stig 3. sæti Hrímnir 260 stig
Sigurbjörn Bárðarson Lýsi 32 stig 4. sæti Árbakki / Norður- Götur 241 stig
Sigurður Sigurðarson Lýsi 29 stig 5. sæti Ganghestar / Málning 237 stig
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH